Archive forNovember, 2004

Bloggedíblogblogg

Stemmari hér á ferð. Helgin var einkar hressandi, byrjaði á því að ég fór til gollans í xbox, nema hvað að eigi var spilað neitt xbox heldur bjór drukkinn sem aldrei fyrr. Svo héldum vér ásamt gólfinum og tröllinu á Ryans, sátum þar að drykkjuleikjum 3 þar til ölvun gerði það að verkum að teningaspil var úr sögunni. Þá var haldið á efri hæðina þar sem nokkrir skítugir íslendingar voru við völd og var það svo. Að lokum var haldið að fá sér flatböku til að brenna í burtu allt sem líktist skinni í efrigómnum og tungunni.
Laugardagurinn hófst á mikilli þynnku, sem stigmagnaðist við verslunarferð þar sem leitaðar voru uppi jólagjafir. Ég verslaði eigi neitt sökum þynnku og hugsanaruglings, en verslaði þó eilítið í miðstöð garðs rósarinnar daginn eftir. Mikill hressleiki þar við völd og danir kunna svo sannarlega að versla þangað til að þeir detta, eins og spakur maður hefði ef til vill orðað það, en líklega ekki.
Skemmtilegt blogg í dag eins og allir sjá, þannig að ég ætla að spara gærdaginn og núið þangað til síðar, en get þó gefið teaser “Ég fékk nýtt verkefni í skólanum í gær, og í dag fer ég í viðtal”
Og það var og.

Comments (3)

Bryðgðe Jóhanns

Jebb, ég fór á Bridget Jones í gær. Ég er töff, hipp og kúl, læt ekki neinn segja mér annað. Í bíóinu voru samankomnir allir stærstu saumaklúbbar Óðinsvéa ásamt dulitlum samkynhneigðum karlpeningi. Og svo var ég þarna líka. Ég skildi nú ekki mikið af þessari mynd. Ég var kannski að pæla of mikið í því hvað mér fyndist hún RÉnÉ Zéldigger ofboðslega ófríð kona. Það Og svo hjálpaði það ekkert að hún var sjúklega feitt (“TSJÖBBÍ” kannski fallegra orð?).
Eftir myndina var mér tjáð af kærustunni minni og þeim sem með í bíóið fóru að bókin hefði aldeilis verið miklu skemmtilegri, en myndin hafi nú alveg verið prýðisgóð líka. Ég sagðist nú bara ekki hafa náð mér í þessa bók ennþá, en ætlaði sko aldeilis að gera það núna og glugga í þessa biblíu karlmennskunnar.
Ein skemmtileg pæling um þessa bíóferð: Fyrir myndina voru auglýstir 2 tölvuleikir, Halo2 (sem ég er einmitt að niðurhala núna!) og svo Burnout3 (sem ég á). Hverskonar markaðssérfræðingar hafa eiginlega hugsað sér gott til glóðarinnar að auglýsa svona tölvuleiki fyrir sýningu á kerlingamynd dauðans? Ég hefði nú getað skilið þetta ef þetta hefði verið The Sims eða eitthvað, en svo var nú heldur betur ekki Grétar minn! Þetta þótti mér nú samt skemmtilegt og gerði bíóferðina þrælspennandi, því þessir trailerar fyrir Halo2 eru ekkert smávegis svalir. Ef ég hefði ekki farið að kúka fyrir 20mín síðan þá væri ég líklega búinn að missa saur af spenningi við að niðurhala leiknum. Bara að hann verði skemmtilegur.
Svo var nú bara skóli í morgun, en ég var þar bara í 1klst. Stuttur skóladagur mjög vegna þess að það var fundur hjá umsjónarkennaranum, nema hvað að hann er algjörlega með hland í stað heilasella og hefur aldrei hugmynd um hvurn fjandann hann átti að segja okkur þegar við erum loksins mætt. Því er nú ver og miður en svona er þetta bara. Ég er s.s. kominn heim og ætla að skrifa svosem eina blaðsíðu í ritgerðinni minni og klára uppsetninguna á henni. Eina vitið það. Takk fyrir lesninguna lesendur góðir, veriði sæl.

Comments (1)

Veðrið er ávallt indælt

…Í véum Óðins. Strákurinn er mættur í skólann, rennblautur sem og í sjampóauglýsingu. Og einnig skítugur sem og í dekkjaauglýsingu. Jebb, það er slabb úti. Það er ekki þurr blettur á mér, þökk sé skítuga dananum sem stal frambrettinu af hjólinu mínu fyrir einhverjum mánuðum síðan. Takk fyrir kæri skítugi dani, þú átt einn inni hjá mér.
Helgin var gríðarleg. Ég fékk rauðvín og önd… og svo kom laugardagur og þá fékk ég nammi. Og svo sunnudagur með vondum kalkúnanöggum og eggjum og beikoni. Viðburðarík helgi mjög og skemmtileg útí ystu æsar.
Þess má einnig til gamans geta að ég skilaði gríðarlega fallegu CV og umsókn til skólans á föstudaginn, 2 KLUKKUSTUNDUM fyrir skilafrestinn. Ef ég er ekki fyrirmyndarnemandi þá veit ég sko ekki hvað! Umsóknin var skrifuð í þeim skemmtilega stíl sem ég kýs að kalla sleikjustílinn. Einnig skrifaði ég undir með því að teikna typpi með loðinn pung að sprauta á textann. Falleg mynd það mjög og einnig falleg umsókn. Ef ég kemst ekki inn á þessu, þá veit ég ekki hver kemst inn. Ég fer auðvitað til útlendingaeftirlitsins og úða yfir þá rasistablótsyrðum og hverskonar fjandans drulluháleistar og lúðulakar þeir eru.
Nóg í dag, sjáumst síðar, hælbítar.

Comments

Enn kominn tími á blogg

Gríðarhressandi skóladagur þetta, fyrirlestur um atvinnuumsóknir og atvinnuviðtöl. Ég held að ég hafi dáið örlítið inni í mér við það að hlusta á þetta alltsaman. Kerlingin sem var með fyrirlesturinn talar hraðar en akureyringur á spítti og skilningur minn var í samræmi við það. Skemmtilegt að fylgjast með svona fólki, sem enginn skilur en allir þykjast skilja. Merkilegur fjandi.
Ég er annars bara að hugsa um að drulla mér heim, ekki er ég lengur að hlusta á fyrirlesturinn og skóladagurinn er senn á enda kominn. Sem er gott. Svo get ég farið heim, klætt mig úr fötunum, sett spandau ballet á fóninn, smurt mig í chunky hnetusmjöri og dansað YMCA. Jebb, sounds like a plan.

Comments (1)

LÖÖÖÖNG HELGI

Jebb jebb, það eru fjandans svakalegheit í gangi, það er 3ja daga helgi hjá mér. Og ég þarf ekki að mæta fyrr en kl 10 á mánudaginn… þannig að úberlöng helgi hér ég kem. Ég gerði mér glaðan dag nú í þessu og nældi mér í fiskaberkla í formi sushi bakka úr Føtex, godt nok það er, hámaði í mig 12 bita, enda á gríðarlegum rabbat þessi herlegheit. Svo keypti ég (okok, og magga!) mér gourmet hvítvínsflösku á 30kr og sulluðum henni í okkur á mettíma! Hressandi það var og hér sit ég og blogga úr mér líftóruna sökum ofdrykkju.
Og talandi um ofdrykkju, ég er ofboðslega spenntur að geta fengið mér að súpa mjöð um helgina, enda þyrstur mjög ég er. Langar að gubba á löggu, pissa á róna og henda saur um heilt diskótek. Ekki væri það nú léleg helgi ef maður fengi gott tækifæri til þess að subba saur útum heilt diiiskótek! Tjah eða eins og UUUU tveir orða það, “Discoteque”, svona til að vera röff, töff og maðerfökkin maðerfökk kúl. úje.
Eiturlyf þarf ég ei, því með typpi lei…k?

Comments (1)

Blogg blogg og aftur blogg

Ég er búinn að vera lítið eitt veikur seinustu dagana. Það er að sjálfsögðu ekkert nema hressandi og skemmtilegt þannig að ég ætla ekkert að vera að kvarta yfir veikindunum blessuðum. Hinsvegar ætla ég að kvarta yfir einu, og í þetta skiptið verða það ekki töfl mín við páfann. Það kemur þó lítið eitt að postulíninu þar sem ég ætla að kvarta yfir þvaginu mínu. Það er svosem ekkert að þvaginu mínu, en það er einhver fjandinn af þvagblöðrunni því ég þarf að fara að míga, að mér finnst á 1-2klst fresti þótt ég hafi ekki drukkið neinn fjárans fjanda nema mjólkina með morgunkorninu. Þetta er undarlegt mjög og miður nokk. Ég hef hinar ýmsu kenningar um þetta; þar á meðal það að þetta tengist hitastiginu í skólanum sem er oftar en ekki fyrir neðan frostmark. Þessa ályktun dreg ég frá því að pungurinn dregst saman í miklum kulda, þannig að af hverju ætti þvagblaðran ekki að gera það? Minna pláss fyrir piss þýðir jú ekkert annað en það að maður þurfi pissa reglulegar. Þetta er nú ekki til eftirbreytni, en ég vona að þetta reddist eftir apóteksferðina á eftir þar sem ég ætla að kaupa mér þvaglegg. Þannig er ég í rauninni að *UPPFÆRA* sjálfan mig og margfalda stærð þvagblöðrunnar með utanáliggjandi blöðru. Spennandi mjög og þið getið verið viss um að ég leyfi ykkur að fylgjast með þessu um leið og það gerist.
Ég er í skólanum núna í feitum fíling eins og þið hafið kannski greint úr ofangreindum texta. Hér sit ég við heimasíðugerð. Á að gera PORTFOLIO til að geyma öll mín merku verk og segja frá sjálfum mér. Þessi skemmtilega *mappa* eins og ég kýs að kalla á móðurmáli voru er eitthvað sem á að hjálpa manni að komast í áframnámið sem ekki allir komast í. Ég ætti þó að komast inn sökum gríðarlegs gáfnafars og göfugmannlegs útlits og manngæða. Því jú eins og allir sem ég þekki geta vottað þá er ég hvers manns hugljúfi og sweettalker frá fjandanum kominn.
Ég er farinn að pissa.

Comments (2)

Nýr forseti bandaríkjanna?

Vestur-Íslendingurinn Thor Halldorsson III., lýsti í gær yfir sigri í nýafstöðnum kosningum til forseta Bandaríkjanna. Kom yfirlýsing Thors stjórnvöldum vestra í opna skjöldu enda var hann ekki í framboði, en enginn hafði þá enn lýst yfir sigri.
Sjá meira hérna
Mér er mál að kúka.

Comments (2)

Forsetakosningar

Já, ég er í skólanum ennþá. En það sem er mér hæst í huga eru forsetakosningarnar í usa. Þannig er nefnilega mál með vexti að ég sit hérna í frosti og held inni refresh takkanum á cnn.com til þess að sjá hvort að Kerry nái Bush eða hvað. Eins og er er staðan 254 – 252 Bush í vil, en Kerry er búinn að vera að sækja á í allan dag. Ótrúlega spennandi fjandi þetta, ég á fremur bágt með að halda þvagi yfir þessu öllu.
Kerri er minn maður, eða kannski Badnarik… Sem er víst einhver töffarinn… Badnarik.. Bandarik… þetta er alltsaman alveg hreint ótrúlega svakalegt.
Nóg komið af þessu, lifi Schwartzenegger! Schwarzenegger sem forseti 2008!!

Comments

Úje

Smávegis followup á kúkaævintýrinu í gær: Ég var svo gott sem búinn að skíta í mig kl. 12 í skólanum, og átti þá rúmlega klst eftir. Nema hvað mér tókst að halda þessu inni og bara miniskíta á mig (prumpa solid lykt…)… Svo komst ég heim og refsaði postulíninu sem sönnum páfa sæmir. Godt nok. Finn ekki einusinni fyrir kúkatilfinningu núna, er bara léttur sem lauf og flottur sem pottur.
Ég er samt farinn að halda það að það viti enginn af þessu bloggi lengur. Það kommentar enginn, og ég hef ekki hugmynd um hvað það koma margir eftir að ég tók teljarann út… Mér er svosem alveg sama, ég þarf ekkert einhvern til að lesa bloggið mitt! Þetta er bara fyrir mig! Fallega dagbókin mín um klósettferðir og fallegheit!
Obbossí, þarna gleymdi ég mér aðeins og hef ekki hugmynd um hvað ég var að skrifa á undan þessu. Óheppilegt það þar sem ég á fremur erfitt með lestur. Skiptir samt ekki öllu, læt þetta bara nægja í dag.

Comments (1)

ÚFFFFFF

Andskotans fjandi og fjári sko… Ég hef sjaldan í lífinu átt jafn erfitt með gang og aðrar hreyfingar sökum skítastings. Ég er barasta hreinlega að skíta í buxurnar. Þetta er hræðilegt. Og það versta við þetta er að ég er búinn að vera svona í klukkutíma og það eru margir klukkutímar í viðbót eftir af skólanum. Ég verð svo löngu búinn að tapa skítastingnum þegar ég verð kominn heim að það er glatað. En ég á líklega eftir að vera með hann þangað til að ég sest á hjólið á eftir. Helvítis hjól nefnilega, það er algjörlega örugg leið til þess að tapa þörfinni til þess að kúka. Það er eins og það sé skrúfað fyrir krana, um leið og maður sest á hnakkinn hverfur öll kúkatilfinning undir eins. Merkilegur fjandi þetta sko.
Annars var ég að fá mér nýjan síma… En ég kýs að kalla þetta multitool dauðans sökum þess að ég get horft á playboy channel í honum, vafrað á netinu, hlustað mp3 og stundað video conversation. Jú og svo kemst ég líka á msn. Semsagt þetta er allsvakalegur sími sem kostaði heila krónu. Jebb, ég er big spender. Símanúmerið mitt nýja er +45 3110 2169… gríðarlega hljómfagurt og skemmtilegt númer þetta, ætti nú ekki að vera erfitt fyrir ykkur sem hringja einhverntíman í mig að muna. Nema hvað það hringir enginn í mig þannig að þið getið farið helvítis til. Djöfulsins drulluháleistar og lúðulakar. Ég hef aldrei kunnað vel við ykkur!
Skólinn er fjandi hressandi eins og venjulega, skítastingur, verkefnavinna og annað sem tekur eigi að tala um. Mér finnst nefnilega skítastingurinn mikilvægastur. Hann er líka hæst í huga mínum.
Stay white, eat..poo…thing..

Comments (1)