Jahérnahér

Hressandi þetta, kominn með fallegu litina mína aftur og fínerí.
Það er skítakuldi hérna á klakanum, algjörlega skítdrullukalt. Fer heim til danaveldis á morgun, þar bíða mín nokkrir bjórkassar og fínerí þannig að ég er bara pussuspenntur og flottur. Hef vart bragðað bjór síðan ég kom á klakann fyrir tæpri viku síðan, fyrir utan stutta bæjarferð á laugardaginn með frændum mínum. Sú bæjarferð endaði fremur snemma á kebabhúsinu sem er líklega allra versti kebabstaður sem ég hef nokkurntíman farið á. Frekar fer ég til sveitta, feita, ógeðslega tyrkjans á Dino og kræki mér í kebab með armkrikasvitakjöti þaðan heldur en að fara aftur á Kebabhúsið.
Svo fór ég með systur mína á skauta í gær en það er svosem ekki í frásögur færandi nema útaf því að núna er ég ekki með fætur heldur blöðrur. Fjandans skautarnir sem maður leigir þarna eru svo friggin lélegir að maður fær eina stóra blöðru yfir alla löppina eftir þessa fjanda. Ekki hressandi það og auðveldar það mér ekki gang.

Leave a Comment