Skítastingur
Jæja, núna þurfti ég ekki að vera að blogga til að verða mál að skíta. En aftur á móti varð mér mál að blogga þegar ég fann prumpulyktina af mér… Þannig er nefnilega mál með vexti að ég er eitthvað tæpur í maganum, prumpa lykt sem syni satans myndi sæma. Og það sitja nokkrir danir í kringum mig sem fá að njóta hennar með mér. Skemmtilegt þegar maður situr og þarf eiginlega að herpa þarminn til þess að skíta ekki á sig og vera frekar illt í maganum vegna þess að maður getur ekki farið að bomma undir eins.
Annars er ég alveg viss um að þetta styrki mann bara. Eða allavega styrkir kúkinn, gerir hann þéttan og flottan. Skemmtilegt líka frá því að segja að ég hef alltaf verið svona. Er voðalega latur við að kúka og mjög góður í að halda í mér svo dögunum skiptir ef til þess kemur. Þar liggur einmitt kötturinn grafinn, því spekingar segja mér að þetta stuðli að gyllinæð, harðlífi og ég veit ekki hvað. Þannig að ég hef víst helvíti gott potential í allsherjar þarma-blockage. Laxerolía hér kem ég.
Er annars langt kominn með a byggja gríðarlega fallegt 3d umhverfi sem ég á að skila á föstudaginn. Ég henti slatta af því sem ég var búinn að gera og fór að gera annað og betra. Ekki slæmt það og fallegt mjög. Hendi kannski mynd hérna við tækifæri ef einhver hefur áhuga?
Jæja, þið látið mig bara vita lömbin mín, ég reyni að vera sem liðlegastur við mína dyggu aðdáendur.
So long.
Strákalingurinn er í skólanum. Er að gera svo gríðarlega flotta flugvél að það er varla hægt að lýsa því… Kannski ég bara sleppi því og setji mynd. Ok samþykkt! Þetta er nota bene ekki tilbúið, þetta er alphaalphabetacappagamma útgáfa á þessari annars ágætu flugvél. Og ég er ekki heldur búinn að rendera hana þannig að þetta lítur kannski ekkert mikið út eins og þetta þegar þetta er tilbúið.
Hér gefur að líta förunaut minn í kveld. Hlakka mikið til að eyða kvöldinu með þessu fagra fljóði. Annars ekki merkilegt blogg í þetta skiptið, ætlaði bara að prófa að setja mynd með. Skemmtilegt, ha?