Archive forJune, 2004

12. Júní
<12:45>
Í nótt svaf ég hjá karlmanni. Og í morgun gaf hann mér tvær rósir. Jebb, hann Golli litli er hvers manns hugljúfi. Annars er gærkvöldið/nóttin í svolítilli móðu hjá mér, en ég man óljóst eftir partyshooter… oft… Og fylleríi hjá Ænari.. með golla, svenna, nooru, evu og pulla sem ég man ei hvað heitir. Svo man ég eftir að hafa verið á Ryans, og farið ca. 10 ferðir inn og út til að stela glösum, fór alltaf með 2 út í einu… Svo var golli kominn með 8 glös… þá ákvað hann að detta á þau. Sem er auðvitað best að gera í stöðunni. Detta á 8 glös og brjóta þau á kviðnum á sér. Þannig að ég þurfti auðvitað að fara nokkrar ferðir enn og ná í 8 glös aftur… Hissa samt á því að hafa ekki verið fangelsaður eftir að hafa stolið 16 glösum. Ég var líka ekkert sérstaklega mikið edrú þannig að það sást langar leiðir að ég var með eitthvað í vösunum.
Svo varðandi sjóðandi heitu karlmannsnóttina, þá nennti ég ekki að labba í herbergið mitt, þannig að auðvitað kúrir maður bara hjá gollanum… Fór nú samt eftir smástund þar sem hann var farinn að spoona mig full aggressívt. Skemmtilegast var samt við þetta þegar kærastan han svenna labbaði framhjá herberginu í nótt til að fara á klósettið eða eitthvað, þá var hún djöfull hissa á að sjá karlmenn vera að kúra þarna… Auðvitað fyrir opnum dyrum.
Ég og gollinn fórum svo áðan að versla okkur fóður á ávaxtamarkaði í morgun, og þá var okkur gefnar rósir og hann gaf mér sína, sjarmörinn at tarna.
Fór líka í bæinn í drullugóða verðinu í gær, drakk kippu af bjór á einhverjum gosbrunn, fékk pizzaslæsur, fékk vinnu, keypti safetyskó fyrir vinnuna og plöntu fyrir kamelljónið. Big spender ég er. Svo fékk ég auðvitað feita pöddusendingu í gær líka, engisprettur, flugur og kribbur, djúsí var sú sendingin. Mig langar eiginlega bara að háma þetta allt sjálfur. Þess má einnig til gamans geta að ég held að ég eyði meiri pening í mat handa kamelljóninu heldur en sjálfan mig.

Hilsen,
Mistah Working Man

10. Júní
<22:29>
Jebb, eins og glöggir lesendur hafa kannski tekið eftir þá hef ég tekið til notkunar heldur látlausari lit, sem fer betur með augun þegar fólk þarf að lesa langa pistla frá mér. Í dag fór ég út í ógó gott veður, spilaði hakkí með golla, svenna og atla og ýmislegt fleira. Samt gerði ég aðallega ekkert. En ég skeit þó í morgun, og fór í sturtu, þannig að dagurinn er ekki alveg úti. Hinsvegar er ég ekkert búinn að tosa þannig að ég finn fyrir vissum þrýstingi í kringum böllinn á mér. Ég er farinn að óttast að það fari að slá í hann fljótlega sökum lítillar notkunar. Því allir vita það vel að ef maður geymir hluti ekki í ísskáp og notar þá ekki reglulega, þá eru þeir fjandi fljótir að fara að mygla. Og myglaðir bellir er eitthvað sem verða engum að gagni, nema þá kannski læknavísindunum í framleiðslu á fúkkalyfjum og slíkum hressleika.
<14:03> Lenti í skemmtilegri umræðu áðan með káraling og ólaling um rúnk. Og hve fjandi erfitt það væri að halda út 10-20daga án losunar á einn eða annan hátt. Kom einnig það skemmtilega fram að 40 days 40 nights sé mesta masókismamynd sem til er, hvenær væri best að tosa (á kvöldin þegar allir eru sofandi) og meira og meira skemmtilegt sem flestir gætu haft gaman að. En það sem gleymdist að einhverju leyti voru þrifin, kemur bara í ljós seinna.
Þetta byrjaði og endaði í skemmtilegri umræðu um sæðisgjöf í danmörku þar sem maður fær víst nokkra hundraðkalla fyrir að gefa sæði, líklega meira ef maður er svona geðveikislega flottur eins og ég. úff, ég myndi borga stórar summur fyrir að ganga með barnið mitt. (?) Jæja nóg um það, og nóg blogg í dag.
P.S. Ég held að ég sé búinn að sigra gyllinæðina, ég náði fjandi góðum kúk í gær. Get eiginlega ekki beðið eftir næstu klósettferð, vonandi verður hún eins og ég hef vanist í fortíðinni, helvítis gyllinæðin er fjandi leiðinleg, hvað þá hægðartregðan. Frekar kýs ég dropadrullu yfir hægðartregðu… Anyday… Ta.

Regards,
Freddi F

9. Júní
<00:42>
Stutt update í þetta skiptið, langaði bara að skella inn þessari skemmtilegu mynd og kommenta aðeins á kúkavandamálin mín.
Þannig er nefnilega mál með vexti að seinustu 3-4 vikurnar hef ég aðeins náð einni góðri klósettferð. Ég er búinn að vera að skíta í mig í 3-4 vikur, en get með engu móti fengið mig til að skíta meiru en litlu sparði í hvert skipti sem ég ákveð að takast á við svertingja rassgatsins. Ég var farinn að hafa töluverðar áhyggjur af þessu, fremur útþaninn maginn minn og svona hressleiki, en svo loksins náði ég drullugóðri klósettferð á laugardaginn. Það var þó stutt gleði þar á ferð þar sem þetta virðist vera komið upp aftur hjá mér. Sama hvað ég nenni að hanga á klósettinnu, þá fer ekki nema einn ræfill út þegar ég sest og svo ekki söguna meir. Kannski maður bara fari að taka kreatín aftur og éta meiri trefjar… aldrei að vita, en ég læt ykkur fylgjast með hvernig þetta gengur hjá mér, svo mikið er víst.
Líklega lagast þetta þó fljótlega þar sem ég er kominn til danmerkur og er farinn að borða hollan og staðgóðan mat loksins aftur. Ég á bara svo fjandi bágt með að skilja hversvegna þarmarnir bregðast mér svona. Mér finnst þetta bara hálfgert hneyksli þar sem ég hef farið vel með þá og aldrei sett neina aðskotahluti í rassinn – exit only!

kveðja,
Gamlinginn með gyllinæðina

7. Júní
<18:30>
Jebb, kominn er ég í land hita, bjórs og stórra brjósta. Danmörk má bara vara sig, því ég er kominn!
Á Íslandi gerði ég ýmislegt, til dæmis svo gott sem drakk mig til dauða. 3 djömm á 2 helgum, öll skiptin ölvun í miklu hámarki. Svo var ég í sveitasælunni í 5 daga eða svo, drullugott það, heiturpottur oft á dag og svona. Ekkert merkilegt svosem við þetta, en heimferðin var hressandi.
Í flugvélinni var ég við hliðiná 2 hressum heldri ameríkönum sem spurðu mig um plöntu- og íþróttalíf á Íslandi, þar sem ég tjáði þeim að “þessi fallegu blóm” væru lúpínur og að íslendingar væru lélegir í flestum íþróttum nema bridds. Hressir þar, svo stóð á töskunni hjá kerlingunni “I support president Bush and his troops in iraq!”
En það sem var skemmtilegra var maðurinn fyrir framan mig. Hann var með stutt, grísahárlitað hár, og svo ljósbleikt hörund þar undir, rétt eins og á svíni. Svo var hann með mikið exem þarna í hársverðinum og gerði lítið annað en að kroppa í það í flugtaki og lendingu, alveg þangað til það fór að blæða smávegis frá hinum ýmsu stöðum á hausnum hans. Merkilegur fjandi þar á ferðinni. Aldrei hefur mig jafn mikið langað að nota ælupokann sem er alltaf fyrir framan mann
Svo var fjandi skemmtileg kerling í lestinni, ca. 300kg, með mikinn mat með sér. Svo var hún með svona lítinn rafmagnsbíl sem hún sat á þar sem hjólin eru venjulega… Skemmtileg sjón að sjá 300kg kerlingu sitja á rafmagnsbíl, troðandi mat í andlitið á sér í hjólastæðinu í lest…

Kærlig Hilsen,
Horböllurinn

Comments