28. Maí
<15:21> Já, ég er farinn að halda að tannlæknar séu frá satani komnir. Ég var einmitt að koma frá einum slíkum, ætlaði bara að fara í einfalt og skemmtilegt check, en það var nú ekki! Skrapa smá tannstein, skoða tennurnar, taka röntgen… sprauta hér og þar… RÍFA ENDAJAXL ÚR! Mér var ekki alveg sama þegar hann spurði hvort hann ætti ekki bara að “kippa honum úr” fyrir mig fyrst ég væri hérna. En jæja, gerði það svosem og núna er ég einni tönninni fátækari, með gat í tannholdinu, blóðbragð í munninum og dofinn kjaft. Helvítis tannlæknar.
Annars er ég að vinna í því að finna mér vinnu í danmörku og rakst á þetta. Mig langar að fá vinnu þarna, friggin free porn eins og maður vill! Af hverju eru ekki allir vinnustaðir svona! No more pungsig í vinnunni, léttur sem lauf og enginn þrýstingur, Því let’s admit it, það er svo gott sem verið að segja fólki að tosa í vinnunni. I like that.
Tóti tannlausi
26. Maí
<11:36> Lítið um blogg hér í klakalandi, enda lítil tíðindi af klaka sem þessum. Eina sem víst er að hann er farinn að bráðna fjandi mikið. Eða eitthvað.
Ég kom til klakalands á föstudaginn og var dreginn beint á djamm með frændum mínum, dauðafyllerí niðrí bæ eftir klukkutíma af 3ja manna drykkjuleikjum sem tryggðu hressleika þetta kvöldið. Ég var röflandi skríðandi ölvaður og vissi ei hvað ég hét. Einnig átti ég í vandræðum með hringvöðvann minn þannig að ég missti saur oftar en ekki þegar ég var að tala. Svo endaði kvöldið í sófanum hjá Gumma frænda þar sem ég drapst í miðjum samræðum. Svo vaknaði ég kl 8 um morguninn og hypjaði mig heim á leið með nasistafyrirtækinu hreyfli.
Svo var það sama á laugardaginn, frítt áfengi í útskriftarveislu og ölvun eftir því – aftur… Svo var haldið í bæinn þar sem ég var stunginn allhrottalega í bakið á frænda mínum þar sem hann flúði eftir stutta stund til kerlingarinnar sinnar, líklega til þess að sleikja á henni taðgatið. Helvítis drasl þetta kvöld, ég var kominn heim um 4-leytið.
Skemmtilegt líka frá því að segja að ég dó næstum um helgina vegna þynnku, þið megið þakka guði fyrir að hafa mig hérna á þessari einmannalegu jörðu áfram.
Helvíti vanþróað land hérna samt, ég ætlaði að halda kúlinu eins og venjulega og blogga úr símanum mínum þegar ölvun næði hámarki o.s.frv. en þá bara virkaði ekkert svoleiðis hjá mér þannig að ég sat eftir með sárt ennið og óhemju magn lélegra drykkjumynda sem líklega enginn fær að sjá því þær eru alls ekki jafn sniðugar núna og þegar ég tók þær. Ég man ekki einusinni af hverju ég tók þær, en það hefur líklega verið eitthvað óhemju sniðugt fyrst ég ætlaði nú að gera það.
En í dag ætla ég að fara út með flugdrekann, því það er – rok – hérna… Hver hefði getað trúað því að það væri rok hérna?!”?#?!#”?#%? Samt er svosem heitt, 13°C segir tölvan mín mér, og aldrei lygur hún, enda hefur enga ástæðu til.
Friðrik krónprins
15. Maí
<16:52> Það er líklega réttast að benda á að ég er farinn að senda myndir og leiðindi á keli.php.is/blog, svona eitthvað úr símanum hjá mér. Aldrei að vita nema þetta verði einhverntíman skemmtilegt.
Annars var brúðkaupið margumtalaða í gær, djöfull var það drulluskemmtilegt brúðkaup, ég bara skil ekki hvernig mér tókst að halda þvagi yfir þessu svona lengi, því hann friðrik er svo fjandi myndarlegur og Mary alveg sérstaklega glæsileg kona! Vonandi eigum við eftir að sjá mikið af þeim í framtíðinni, enda fyrirmyndarpar þarna á ferðinni. Til hamingju Friðrik og Mary!
12. Maí
<11:54> Jeij, ég keypti mér nýjan síma á laugardaginn. Djöfull góður sími þar á ferð, Sony Ericsson T610, myndavél og allskonar fínerí. Samt fíla ég best þann fídus að þegar maður er með hann í vasanum, þá hitar hann upp á manni punginn, rétt upp við suðumark til þess að drepa alveg örugglega allar sáðfrumur sem maður á, svo tæmist batteríið sem bónus við þetta, og svo getur maður ekki kveikt á honum aftur. Jebb, Sony Ericsson eru bestu símarnir ef manni er kalt í klofinu eða hefur gaman af því að skipta um síma og svona. Nei, ég get ekki mælt með Sony Ericsson… Kannski næsti verði betri.