29. Apríl
<18:13> Jæja, núna er ég aldeilis byrjaður í heilsuátaki, ég keypti mér Ultra Ripped til að hjálpa mér í baráttunni við spikið. Núna ætti spikið aldeilis að renna af mér, rétt eins og gullfoss.. rennur.. niður? Annars fór ég í körfubolta við strákana kátu í gær og braut á mér tánna, hún er farin að rotna af núna, vonandi get ég samt haldið kynfærunum.. Svona rotið kjöt lyktar fjandi illa… Og þetta er líka farið að rotna lengst uppí klof.. Jebb, ég er ógeð; Feitur, lítill, ljótur og með lítið typpi. Jebb jebb.
Annars skilst mér að svona pillur sem brenna fitu stækki typpi, geri mann fallegan, ljóshærðan og hávaxinn þannig að ég bíð spenntur eftir árangrinum, sem ætti ekki að láta á sér standa, þar sem flestar pillur sem er hægt að kaupa virka á innan við viku, þannig að eftir 2-3 mánuði ætti ég að vera flottur, grannur og sætur. ÚJE!! Svo svaraði ég líka einu spamminu mínu til vonar og vara, þar sem mér var boðið stærra typpi, sem er akkúrat sem ég þurfti!! Þetta er sko alveg met hvernig það er hægt að targeta svona email á réttu markhópana, hvern hefði grunað þetta?
Bjössi Bolla (still fat)
28. Apríl
<14:16> Ég og litlu kútarnir mínir ásamt Holgeiri og Heiðu fórum í smávegis hjólatúr til Kerteminde á sunnudaginn til að kíkja á ströndina og gaf þar að líta ýmislegt skemmtilegt.. Meðal annars þennan gríðarhressa, útþanda kisa í vegkantinum á leiðinni. Svo var spilað eilítið kúbb og svona eins og maður gerir venjulega á ströndinni, lítið merkilegt þar á ferðinni. Svo var gríðarlegt fyllerí á föstudaginn reyndar, ég drakk óhemju mikið og var óhemju hress, gekk með punginn úti o.fl. Set etv mynd af pöngnum á mér við tækifæri, þarf bara að fá myndina hjá Sveini litla. Njótið kisunnar á meðan ég nenni ekki að blogga meira :)
Pungurinn
18. Apríl
<14:19> Ég rakst á þessa skemmtilegu mynd af línuskautameiðslum og langaði að setja hana hér. Ég er einmitt búinn að vera fjandi duglegur á línuskautum síðustu vikuna eða svo og fylgst með sveini detta allnokkrum sinnum á rassinn. Ég hef nú ekki séð rassinn hans nýlega, en ég vona að hann sé ekki svona.
Annars bara Klám og fínerí hérna á Skt. Jørgensgade, skemmtilegt nokk. Ég fór líka að kúka í gær og lenti í tómu rugli en það var bara eitt blað á klósettpappírsrúllunni þannig að ég þurfti að þerra stærstu kleprana með því og labba svo með rassinn útí loftið útað skáp til þess að sækja mér meiri pappír. Svo var eins og venjulega töluverð skán eftir saurinn í postulíninu, en það er svosem ekkert nýtt þannig að ég kveð bara að sinni, ekkert merkilegt að gerast.
15. Apríl
<10:32> Drulluferskur ég er, mættur í skólann og flottur nokk. Fékk í gær klippingu hjá sveini enda var ég orðinn hárprúður nokk, sem gengur auðvitað ekki þegar sólin er farin að hækka á lofti og dúfurnar farnar að kurra. Ég fékk sérstaka prins valiant klippingu, sem var einmitt á sértilboði þetta kvöldið. Ég þurfti eilítið að venjast þessu þar sem ég var með svo mikið hár fyrir, en ég er svo drullupussuflottur núna að ég myndi líklega ríða mér ef ég gæti… Málið er bara að ég er með svo lítið typpi að ég get ekki teygt það og troðið í taðgatið mitt. Mikið væri það nú samt gott, þá myndu allskonar vandamál eins og kynsjúkdómar og kláði hverfa frá mínum kynfærum, vegna þess að ekki get ég smitast af mér þar sem ég er nú þegar með alla sjúkdómana sem ég er með. Svo gæti maður líka stjórnað dypt og hraða sjálfur, ekkert rugl svona eins og þegar manni er riðið of fast eða laust. Jebb jebb, þarmamök eru næsta level af sjálfsfróun. Ég er að hugsa um að fara að svara tölvupóstinum mínum og fá mér smávegis penis extension, viagra og cialis. Ég hlyt að þurfa það þar sem ég fæ mail um það í tíma og ótíma. Þetta er nefnilega það sem kallast markhópsbundnar auglysingar
Svo er ég líka orðinn eins og tony hawk línuskautanna, ég er búinn að fara núna með litlu kútunum mínum 3 daga í röð á línuskauta og ég er ekki frá því að ég sé að verða bestur í heiminum, fer meiraðsegja að líða að því að ég fari á STÓRA PALLINN.
Best að fara að búa til smá fleiri sql skipanir, mér finnst það svo drullugaman.
Freddi Valiant
7. Apríl
<21:37> Jebb, drullunýtt blogg hér á ferðinni, ég legg ekki meira á ykkur! Ekki mikið hér um að vera nema gamla settið kemur í heimsókn á morgun og ég er friggin búinn að taka til og gera allt nokk drullufínt hérna fyrir þau. Ekkert til að kvarta yfir hérna nema kannski vonda lyktin af mér, þar sem ég virðist prumpa einkar mikið þessa dagana, ég kenni rúgbrauðinu sem ég og sveinn keyptum okkur, en samt er ég ekki búinn að vera nálægt því sem kristján er búinn að vera að prumpa. Sjaldan hef ég heyrt nokkurn mann prumpa jafn fjandi mikið, og hann prumpar líka hvar sem er; í gæminu, heima, skólanum og á hjólinu, you friggin name it. Svo langaði mig að láta litla sæta mynd fylgja með blogginu hér í dag, en hér er hún. Læt þetta duga í dag, ég er eigi í essinu mínu og ég finn að allur maturinn sem ég borðaði áðan er farinn að þrýsta á þarmana, ég át svo friggin mikið að ég hef smávegis áhyggjur af því að ég eigi eftir að missa saur.
Knúsi