28. Janúar
<13:01> Jæja, þá er Kristján litli kominn heim til sín… Loksins. En ekki stoppaði hann lengi þetta skiptið, heldur er strákurinn farinn í rusttur strax, og ég strax orðinn aleinn í stóru íbúðinni. Draugarnir eru alltaf að stríða mér þegar ég er svona einn heima og ég er í hálfgerðu rusli barasta. En þá voru nú góð ráð dýr, vegna þess að ég fann besta leik í heimi. Ég hef eitt ótakmörkuðum tíma í þessum leik, og held að ég sé loksins kominn á endakallinn… Djöfull er ég búinn að mastera hann! Ég skora á ykkur í duel í honum, ég lofa því að þið eigið eftir að hlaupa til mömmu grátandi eftir það!
Annars er alltaf sama typpa- og prumpulyktin af mér, voða lítið að frétta, er bara að forrita svolítið og byrjaður að æfa aftur.
Prumpuógeðið
25. Janúar
<13:08> Jahérnahér, næstum komið ár síðan ég flutti til Danmerkur… Gerðist ferskur í dag og kíkti til köben í morgun, fór samferða ingó í lestinni þegar hann fór til Íslands í morgun, vaknaði kl. ofboðslegasnemma og fór til köben, þar hitti ég frænda minn þar sem gaf mér morgunmat á palace, og svo seinna um daginn dýrindis steik á kongens nyhavn. Jebb, ég kann fjandi vel við sjöbben þegar manni er gefinn matur.
Svo þegar kvöldið færðist nær hitti ég Atla og Trausta hina náttúrulausu, Hauk hinn fjölfatlaða og Heiðu gleiðu á einhverjum skítabar, þar var sötrað smá öl, en eigi tímdi ég því sökum þess að ég var búinn að fá allt splæst á mig hingað til og strákarnir voru eitthvað tregir til, helvískir.
Eftir þennan kúkabar og smá stopp á hótelherberginu hjá Trausta og Atla var kíkt á einhvern helvítis wallaby veitingastað, þar sem pöntuð var þríréttuð máltíð sem uppistóð af krókódílakjöti, kengúrukjöti og einhverju ostakökudóti í eftirrétt. Og ó mæ gaaaaad hvað helvítis drullumaturinn var drullufokking shit ass cum góður, ég bara hef sjaldan étið jafn góðan mat held ég, og ég er ekki frá því að steikurnar sem var hægt að fá þarna hafi verið jafnvel girnilegri. Einhverntíman á ég eftir að fara þarna aftur og fá mér feita 1kg steik á 325kr og verða feitur til æviloka. JAMM OG JEBB. Mæli sérstaklega með þessum fína stað, góður matur.
Svo keypti ég líka húfu í H&M.
Svo er skemmtilegt frá því að segja að ég fékk skemmtilegan pakka um daginn frá iwantoneofthose.com, og í honum var lítið skemmtilegt tæki sem kallast partyshooter. Þetta skemmtilega tæki gerir manni kleyft að drekka eitt stykki flöskubjór alveg ofboðslega hratt, eins og þetta myndband gefur til kynna. Mikið fyllerí var á fimmtudaginn þar sem þetta tæki var prófað útí ystu æsar af undirskrifuðum, og ég verð bara að viðurkenna að þetta gerir mann alveg ofboðslega röflandi fullann á mettíma með met magni. Endilega fáið ykkur slíkt þar sem þetta er einmitt á tilboði hjá iwantoneofthose.com.
Skemmtileg líka svona fyllerí á fimmtudögum, sérstaklega þegar ingó þarf alveg endilega að vakna kl 5-6 um morguninn eftir það TIL ÞESS AÐ FARA Í FLUG! Það semer ennþá skemmtilegra er þegar maður vaknar sjálfur kl. ca. 10:30, röltir inn til ingólfs og sér hann vera að knúsa koddann allsvakalega, næstum eiga mök við hann. Svo varð mér á orði “Ingó, ég hef ekki hugmynd um hvurn djöfulinn klukkan er, en mig grunar að þú sért búinn að missa af fluginu”, sem gat einmitt passað vegna þess að hann hefði þurft að taka lest kl 8:47 í seinasta lagi til þess að ná fluginu. Þetta er eitt það skemmtilegasta sem ég veit um, og ég flissa ennþá þegar ég hugsa um þetta. Svo reddaði kerlingin hans þessu og hann komst heim daginn eftir, 7000kr fátækari.
20. Janúar
<22:30> Á skíðum blogga ég trallalalala trallala laaaa!!! Nei fjandinn hafi það ég blogga ekki rassgat á skíðum. Og ég skal nú bara segja ykkur af hverju ég blogga ekki á skíðum. Það er vegna þess að mínir helvítis skitnu foreldrar taka mig aldrei með á skíði. Andskotans kvikindin eru núna á Ítalíu að djamma með Michael Schumacher og Rubens Barrichello og renna sér niður einhverjar andskotans sterabrekkur, en hvar er andskotans einkasonurinn? Jebb, hann er í landi helvítis dananna, DANMÖRKU! Djöfull ætla ég einhverntíman að gera eitthvað skemmtilegt og bjóða þeim ekki með, ég kann einkar illa við þau eins og er.
Annars er ég búinn í prófum núna, og líka búinn með 3 bjóra og ég er orðinn hálf ölvaður. Orðið svo drullulangt síðan ég fékk öl að ég er eins og helvítis 30kg anórexíusjúklingur, þoli ekki nokkur prómill og þá á ég í erfiðleikum með að fókusa og stend illa í lappirnar. (Mig grunar það allavega, ég er svo mikill djöfulsins letingji að ég held að ég geymi það bara þangað til að ég þarf að sofa.)
Mér gekk skítilla í prófunum… fæ örugglega engin námslán, féll í fullt af drasli og er heimskari en orð fá lýst, en mér er svosem nokk sama um það vegna þess að ég er svo ótrúlega myndarlegur að gáfur hafa ekkert með frama minn og framtíð að gera. Ég er svo ótrúlega djöfulli heimskur og illa gefinn, en guði sé lof, þá er ég fallegur. jebb jebb…
Held ég skrifi lítið meir í þetta skiptið á þessa guðsvoluðu heimskusíðu, ég gæti gefið upp einhverjar upplýsingar sem eru ósannar og heimskulegar, best að geyma það til seinni tíma, svo er ég líka orðinn pínkulítið þreyttur, var nefnilega að HAKKA í allan dag… Svo er ég líka að hugsa um að fara að vinna í planinu mínu að útrýma dönum… Ég ætla að vera eins og Hitler, nema ég ætla að drepa alla sem eru af dönsku bergi brotnir og búa til sápu úr þeim. Andskotans danablábjánar, ég hata þá meira en lífið sjálft.
16. Janúar
<00:48> Úje, byrjaði daginn á því eldsnemma í morgun (9:30) að taka plastið af klósettsetunni á klósettinu sem við fengum í gær og skeit í það. Djöfull var það gott. Svo er líka skemmtilegt frá því að segja að í gærkvöldi þegar kerlingin sem leigir okkur spurði hvort það væri ekki í lagi hvort það væri skipt um klósettið um leið. Og þegar skítugi verktakinn kom upp með klósettið, þá varð mér orðið alveg þvílíkt brátt í brók, og þurfti að sofa þannig. Svo vaknaði ég í algjörum spreng og afmeyjaði nýja klósettið… Og það var gott!
Ég ætlaði að skrifa töluvert meira, en í staðinn er ég að hugsa um að setja Airsupply á fóninn, stinga símanum uppí rassinn á mér og rúnka mér. Mér leiðist.
14. Janúar
<23:48> Vegna mikilla fyrirskipana og yfirgangs hef ég ákveðið að setja inn smá myndir af nýju íbúðinni. Ég og ingó tókum smá photosyrpu og uppskárum við þetta líka gríðarlega getnaðarlega safn af gullfallegum myndum. Ég bara held að ég hafi sjaldan séð jafn mikla fegurð í einu albúmi. Og hafið eitt í huga, lesendur góðir; Það er ekki notuð nein trikk til að gera okkur svona fallega, við erum bara svona! Ekki einusinni notað makeup! Þess má einnig til gamans geta að þetta hús er frá 1876 sem við búum í… Drullugamalt, en jafnframt drulluflott hús
Annars fór ég í próf í dag, projekt og systemudvikling… Projekt gekk svosem allt í lagi, ætti alveg að geta slefað í það og náð því, en guð minn góður hvað mér tókst að klúðra hinu draslinu illilega fjandinn hafi það… Ótrúlega litlar líkur á því að ég nái þeim fjanda allavega. Djöfull skemmtilegt samt að ég á bara eitt próf eftir, forritun, það ætti alveg að reddast fjandi fínt, sérstaklega ef ég er heppinn með spurningu, og fæ eitthvað um t.d. GUI parta í java eða eitthvað svoleiðis. Það er á þriðjudaginn þannig að ég er ekkert að stressa mig neitt á því að rifja upp alveg strax.
Svo gerðist leiðindarhlutur í gær… Snákurinn minn slapp úr búrinu yfir nóttina. Hann hefur skriðið uppúr bara fyrst það var ekkert lok á búrinu (kvöldið áður ætlaði ég að setja lokið á, en frestaði því til morguns). Núna eru komnir næstum 2 dagar og ekkert bólar á snákkvikindinu. Vonandi bara að maður finni hann einhverntíman á næstunni, voðalega leiðinlegt að vita ekkert hvar hann er og hann bara einhversstaðar á flakki í góðum fílíng, helvítið á honum
Svo þarf ég að fara á morgun og týna upp svona 20kg af ló og hreinsa gamla kollegíherbergið sem ég var í. Helvítis vesen, það verður komið að skoða það kl 13:30 og ég þarf að vera búinn að þrífa og gera allt fínt þegar það verður. Það er svosem fínt, vegna þess að ég er algjör hreingerningarVÉL!
Jæja, ég er farinn að sofa, tala kannski smá við ingó fyrir svefninn samt, það er svo róandi.
12. Janúar
<21:33> Menntavegurinn er langur og strangur. Ég lærði í nokkrar klst í dag, og mér líður eins og svo miklu verri manni en ég var þegar ég vaknaði í morgun. Hvaða andskotans grasmongólíta ætli hafi dottið svona lagað í hug. Það getur ekki verið að nokkurri lifandi sálu finnist skemmtilegt að læra, af hverju ætli næstum allir geri það. Ég vildi að ég ætti heima í einhverju þróunarlandi eins og namibíu eða eitthvað, þá þyrfti ég ekki einusinni að kunna að lesa, hvað þá að lesa um eitthvað sem er hundleiðinlegt og mæta í skóla, próf og allskonar óþverra.
Á morgun á ég að fara að hitta grúppuna mína, einhver undirbúningur fyrir prófið sem er á miðvikudaginn. Mig hlakkar svo til þegar ég verð búinn með það, því þá ætla ég að nota tækifærið og hrækja í andlitið á öllum sem ég er með í hóp.. Sérstaklega ætla ég að einbeita mér að svíninu, en ég ætla einmitt að hrækja í augun á því. Og ef ég hitti ekki í fyrstu tilraun, þá reyni ég bara aftur! Ég er ekki maður sem lætur deigann síga, ég bara reyni aftur!
Nóg komið af bloggi í bili samt, held ég kíki bara á “Applying UML and Patterns” og æla svolítið yfir sjálfan mig. svo ef ég verð heppinn, þá sofna ég á bakinu í kvöld, og drukkna í ælunni minni. Mikið væri það nú skemmtilegt.
<00:05> Jahérnahér, lítið um að ske þessa dagana, og ég líka frekar latur í skriftunum rétt eins og í lærdómnum. Ég fór í stærðfræðipróf á föstudaginn, sem var bara hressandi nokk, ég er ekki frá því að ég hafi jafnvel reiknað eitt dæmi rétt fjandinn hafi það. Ég var búinn að gera það sem ég kunni þegar það voru 28 sek liðnar af prófinu (tók smá tíma að skrifa nafnið mitt og studienummer), svo hófst bara lærdómurinn þar sem ég skoðaði ýmis dæmi sem ég hafði ljósritað hjá bekkjarfélaga mínum og tókst að reikna eitt eða tvö dæmi á þessu líka fjandi skemmtilega prófi! Mér tókst að halda mér þarna í rétt tæplega þrjár klukustundir (4klst próf samt), og forðaði mér svo heim þar sem gollinn tók á móti mér opnum örmum og bauð mér knús eins og sönnum roomie sæmir. Þess má einnig til gamans geta að ég lærði svo gott sem ekkert fyrir prófið, allavega ef maður tekur ekki með tímann sem fór í að ljósrita glósurnar frá bekkjarfélaga mínum. Lítið kíkti ég allavega yfir þær fyrir prófið, hvað þá annað.
Svo er búið að vera smávegis xbox maraþon hér á bæ í tilefni þess að fyrsta prófið er búið hjá mér, en lítill bjór hefur verið hérna, bara rétt ein kippa í gær… Eða hvort það hafi náð því á annað borð, kannski voru þetta bara 5 bjórar, enda eru nú próf!
Ég komst að einkennilegum hlut um ingólf um daginn samt, en þannig var mál með vexti að ingó var að hreinsa heilann með eyrnapinnum, og hann kúgaðist og kúgaðist og hóstaði og hóstaði. Þetta hef ég fjandans aldrei heyrt áður, einhvern hósta og kúgast þegar hann setur eyrnapinna of langt í eyrað á sér. Bara hverskonar fjandans líkami er það sem veldur ertingu í hálsinum þegar maður notar eyrnapinna. Annaðhvort hefur ingólfi ekki verið kennt að nota eyrnapinna rétt þegar hann var ungur, eða hann er bara fjandi einkennilegur ungur maður. Mig grunar reyndar að það sé bæði, en ef einhver af ykkur kannast við þetta, þá má sá hinn sami (sama?) endilega stíga fram og skrifa um það í athugasemdirnar.
En nú er ég farinn að sofa í bóli mínu, sofa snemma svo maður geti vaknað snemma til þess að læra. Eða jafnvel bara til þess að geta farið snemma í xbox eða út með flugdrekann góða sem ég fékk frá hressa þýskaranum honum Jürgen Pekrul, beint af eBay.
P.S. Ég þarf endilega að muna eftir því að setja meira klám á síðuna mína á morgun, heimsóknirnar eru farnar að minnka umtalsvert, og það vil ég sko alls ekki að gerist. MEIRA klám, það er það sem lýðurinn vill, og hvernig get ég verið illmennið sem neitar lýðnum um það. Ég bara get það ekki, ég hef það ekki í hjarta mínu.
5. Janúar
<20:51> Jæja, búinn með kjúklingabakka, hvítlauksbrauð, 2bjóra og slatta af BBQ sósu (p.s. það er búin ein flaska af slíkri á þessum 3 dögum sem við erum búnir að búa hér í Skt. Jørgens gade 119 (1. sal)).
Annars erum við trallarnir bara alveg fluttir, notuðum 3klst á laugardagsmorgni til þess, fórum svo að versla í aldi og voila, hægt að skila bílnum! Erum annars búnir að koma okkur ágætlega fyrir, með 2×28″ sjónvörp, 2x xbox og ca. 50 xbox leiki. Já, það vantar sko ekki skemmtunina á þennan bæinn. Svo er ég drulluánægður með net/kapalsjónvarpsaðilann okkar, ég hringdi í morgun að láta opna fyrir kapalsjónvarpið, eftir 20mín var gaurinn kominn til að opna fyrir sjónvarpið. Við tókum ódýrasta pakkann, heilar 5 áhorfanlegar stöðvar. Nokk kátur með það, allavega nóg að gera! Svo hjóluðum við karlarnir til að sækja router og svona til að komast á netið á sama staðnum, fínt nok, ég pungaði út 1500 kr fyrir því, innifalið 3 mánuðir af 512/256 ótakmarkað download. Svo vorum við bara komnir á netið med det samme (svona þegar ég var búinn að fara yfir það sem ingó var búinn að gera því hann hafði víst tengt þetta örlítið vitlaust). Skemmtilegt líka útaf því að það er allt þráðlaust og flott hérna. Jebb, þetta er nútímaheimili.
Annars lítið búið að ske hérna, ég er búinn að vera á leiðinni að fara að læra núna í nokkra daga, en alltaf vantað eitthvað, ætla samt að fara í skólann í fyrramálið, ljósrita smávegis shit svo ég hafi nú eitthvað til þess að læra. Er samt farinn að efast um að ég geti náð þessum fjára, farinn að halda að ég sé full illa gefinn fyrir skólagöngu. Ef einhver hefur hugmynd um eitthvað nám sem ég gæti haft meira gaman af, þá er ég OPINN FYRIR HUGMYNDUM! Mér er farið að leiðast svo ógeðslega í skóla og er farinn að leita að námi sem gæti hentað mér betur þar sem mér finnst þetta frekar ofsalega mikið leiðinlegt.
2. Janúar
<22:23> Fín áramót. Fín jól.
Fór til gollans graða eftir fratgetturnar og blandaði geði við ættingja hans, hellti einnig í mig nokkrum bjórum. Svo var haldið heim um 6-leytið og þarf ákvað ég við lítinn fögnuð viðstaddra að fara að sofa í baðkarinu. Mjög gott.
Ég fór til Íslands gagngert til þess að bæta á mig svosem 5kg eða svo, en svo virðist sem það plan hafi klikkað illilega. Í staðinn ákvað ég að éta eins og svín og bæta engu á mig. Ég hefði betur fengið mér rjóma með jólasteikinni í staðinn fyrir þetta helvítis jólaöl.
Annars er maður kominn til danaveldis aftur, búinn að pakka megninu af draslinu sem ég á þannig að maður flytur á morgun, enda búinn að leigja bíl og allan djöfulinn. Skrifa meira seinna.