30. Október
<23:06> Langaði bara aðeins að deila með ykkur einni eða tveimur myndum af snáknum mínum þegar hann var að skipta um ham, hann var að ljúka við það. Skemmtilegt nokk. TADA!
<20:44> Ég er að breytast í meistarakokk og matargat mikið. Ég er kokkur án klæða, nema hvað ég er í fötum. Jább, ég var að elda.
Ég sauð mér pasta (al dente (þýðir perfect)). Svo hitaði ég upp smávegis túnfisk (eina dós eða svo) og henti svo knorr pastamagic á, chili og tomato. Ég er ekki frá því að þetta hafi bara verið fjandi gott, gæti jafnvel verið að ég gæti boðið einhverjum öðrum en sjálfum mér uppá þetta. Skemmtilegt hvað ég er ótrúlega góður að sjóða pasta, ég hef oft verið að heyra fólk klúðra því, en ég hef núna soðið pasta 3x á ævinni og það hefur aldrei mistekist, og alltaf verið al dente, ekki maukað, ekki hart í miðjunni. Heldur al dente. Og geri aðrir betur!
Skemmtilegt líka frá því að 3ja daginn í röð fór ég á fætur kl 8:15 og mætti í skólann á réttum tíma og í alla tímana. Ég er hani!
<10:47> Úje. Ég elska COP (Computer Operativesystem pleee). Skemmtilegt að læra um security policices og svona hressleika, svo fæ ég að gera verkefni á eftir. Ég er næstum sprunginn úr gleði og greddu.
Please somebody kill me.
Í gær fór ég út að hlaupa. Hljóp útí háskóla og til baka, og ég er ekki frá því að það hafi bara verið svolítið hressandi. Ekki komst ég í skvass sökum þess að allir danir virðast fara á miðvikudögum í skvass og feitu ljótu íslendingarnir komast bara alls ekki að líka.
Ég drakk einn bjór í gær og horfði á fyrsta þáttinn í nýju 24 seríunni. Ég er ekki frá því að það hafi verið hápunktur dags míns, fjandi spennandi og Jack Bauer kemur á óvart :) Skemmtilegt að fylgjast með því hvernig framvindan á þessu verður. Verst að ég get ekki sótt görn meir þannig að 24 verður það eina sem ég sæki á vikufresti, bara svona til að klára ekki download kvótann minn, því ef hann kláraðist, þá gæti ég t.d. ekki skrifað á þessa líka æðislegu síðu.
21. Október
<20:25> Ó-MÆ-GAD. Aldrei í lífinu ætla ég að borða annað en BIKSEMAD! Ég fékk sendan pakka í dag, frá mömmu gömlu og þar var meðal annars að finna lakkrís, HUNTS BBQ SÓSU (TVÆR TEGUNDIR!), smokka og fleira. En BBQ sósan var mögnuðust, því mér datt í hug að setja hana á biksemadinn, og ég held að bragðlaukarnir mínir hafi aldrei lent í jafn unaðslegri upplifun, ég er ekki frá því að ég hafi fengið nokkrar fullnægingar á meðan ég át þetta. (hér skrapp ég og skipti um nærbuxur) Hverjum hefði grunað að þessir tveir unaðslegu matarkynseitthvað pössuðu svona vel saman. Ég held að ég ætti að fá nóbelsverðlaunin fyrir þetta! Og þetta er svo ódýrt, ég fékk biksemad á tilboði á 7,95kr, sem er bara um 90kr!!! HVE MAGNAÐ ER LÍFIÐ EIGINLEGA?!?!
Annars var ég svolítið sybbinn í dag þannig að ég bara missti óvart af skólanum… Ég nefnilega vaknaði kl 8 og sótti pakka hjá portnerinum, en svo þegar ég kom til baka á herbergið mitt þá voru 2 tímar í næsta tíma, og það næsta sem ég vissi var að klukkan var orðin 13:20 og ég pakkaður inn í sæng. Óheppni þar, ég er ekki frá því að ég hafi fundið fyrir smá samviskubiti, en það hvarf þegar ég fór að lyfta.
20. Október
<21:36> Aldrei í lífinu hefur mig jafn mikið langað að skera af mér skinnið og henda í frystinn. Maður að nafni ingólfur plataði mig í grillið. Ekki var að spyrja að því að mér tókst að brenna eins og ég veit ekki hvað og lít út eins og stór, feitur og loðinn karfi. En sætur er ég. Sætur karfi!
<00:15> Jæja… Mikið búið að gerast hjá mér.
Fyrst og fremst langar mig að minnast á klósettferðina sem ég var að koma frá, en það var alveg rosalegt. Verður allavega lengi í minnum haft. Þannig var mál með vöxtum að ég var farinn að prumpa óvenju mikið, og stækjan var svakaleg. Þannig að ég ákvað að skella mér á skíthúsið og refsa postulíninu lítið eitt. Fjandinn hafi það, ég held að ég hafi aldrei prumpað svona svakalega á meðan ég var að kúka, það var eins og það væri svona líter af prumpa á bakvið hvern lorra, þannig að þetta frussaðist alltaf út af miklum krafti eins og fallbyssa. Já… merkilegur fjandi.
En núna verð ég aðeins að minnast á ferð mína til kaupmannahafnar á fimmtudaginn. Þannig er mál með vexti að ég átti miða á tónleika með því eðalbandi sem muse er. Þeir voru á fimmtudagskvöldið seinasta, þannig að ég fór snemma til köben til þess að geta fengið mér smá öl með gúndmundi, sem ég var að fara með á tónleikana. Þannig að þegar til köben var komið var tekin línan á strikið, skellt í sig kentucky fried, einum til tveimur öl og eitthvað álíka rugl.
Svo klukkan 19:00 var komið að því að drulla sér á stóra Vega til að fara og kíkja á muse. Húsið opnaði 19:00 og maður var bara tímanlega í því, skella töskunni í fatahengið og svona… Það var eitthvað skítleiðinlegt upphitunarband, danskt held ég þannig að ég og gúndi notuðum tækifærið til að drekka 1-2 öl og tala illa um upphitunarbandið sem var hinumegin við vegginn. Helvíti skemmtilegur staður þarna á ferðinni, ílangur salur, og svo svalir fyrir ofan og svo tvö hliðarherbergi, öll herbergin með bar auðvitað.
Svo þegar klukkan var ca. 21:00 byrjaði snilldin, og þeir spiluðu öll lögin sem maður þekkir með þeim. Til dæmis Time is running out, absolution, blackout, hysteria, muscle museum, sunburn, plugin baby, thoughts of a dying atheist og miklu fleira. Algjör snilld, og djöfull sá ég ekki rassgat eftir þessum peningum. Svo er þessi staður fjandi góður, komast kannski 1500-2000 manns þangað, s.s. frekar lítið, en drullugóður fjöldi og fjandi fínn fílíngur. Skemmir ekki heldur fyrir að geta fengið sér einn eða tvo öl, annað en í helvítis fasistaríkinu íslandi, þar sem maður fær ekki bjór á tónleikum. Semsagt bottom line is að þetta eru með betri tónleikum sem ég hef séð.
Daginn, eftir tónleikana, föstudaginn ákvað ég svo að kíkja í eina dýrabúð. Já, núna var komið að því að fá sér eitthvað krúttilegt kæledyr, og þar varð fyrir valinu snákur (myndir 1, 2, 3). Núna vantar bara nafn á kvikindið, endilega komið með tillögur í shoutout drusludraslið.
Þess má einnig til gamans geta að þessi snákur kallast corn snake, kemur frá norður ameríku, getur orðið 10-15 ára gamall, allt að 1,5metrar og étur músarunga eins og er. Já, ég keypti einmitt 5 frosna músarunga í gær á 30kr, og gaf honum fyrsta áðan. Hann gúffaði honum í sig eins og pez þegar ég var búinn að þýða hann, en hér á hægri hönd gefur að líta mynd af fórnarlambinu á byrjunarstigi þýðingarinnar. Núna er snákurinn með bumbu og felur sig inn í einum af blómapottunum sem hann er með sem felustaði í stóra fína búrinu sínu… ótrúlega krúttilegt if you ask me.
13. Október
<13:05> Mig langar að kynna ykkur fyrir nýja vini mínum. Ég tók eftir honum (henni?) þegar ég fór í sturtu áðan, hann er fyrir ofan sturtuhausinn. Vonandi verður hann vinur minn heillengi!
<02:43> Mikil bókmenntaeitthvað í gangi.
Heilræðavísur. Ungum er það allra best að óttast guð, sinn herra. Þeim mun viskan veitast mest og virðing aldrei þverra. Hafðu hvorki háð né spott, hugsa um ræðu mína. Elska guð og gerðu gott, geym vel æru þína. Foreldrum þínum þéna af dygð, það má gæfu veita. Varast þeim að veita styggð viljir þú gott barn heita. Hugsa um það helst og fremst sem heiðurinn má næra. Aldrei sá til æru kemst sem ekkert gott vill læra. Lítillátur, ljúfur og kátur, leik þér ei úr máta. Varast spjátur, hæðni, hlátur. Heimskir menn sig státa. Víst ávallt þeim vana halt: vinna, lesa, iðja. Umfram allt þú ætíð skalt elska guð og biðja. Höfundur: Hallgrímur Pétursson
Góða nótt.
12. Október
<17:07> Mikið rosalega öfunda ég fólkið sem nýtur þeirra forréttinda að drekka með mér. Ég held að ég hljóti að vera skemmtilegasti maður veraldar þegar ég er drukkinn, ég geri allskonar partýtrikk og ég veit ekki hvað og hvað. Í gær fór ég einmitt á bar með einhverjum svertingjum, borgaði 50kr inn og gat drukkið eins mikinn bjór og ég gat á 2 tímum… Mjög gott mál það, en eftir það var ég orðinn léttur sökum þess hvað ég vildi fá mikið fyrir peninginn. Þá datt mér það skemmtilega trikk í hug að fá smokk, stinga uppí nefið og taka útum munninn. Mikið rosalega féll það líka vel í kramið! Ég er ekki frá því að ég fari að ganga með smokka sökum þessa. Alveg hreint yndislegt að geta skemmt öðrum.
Ég hlýt svosem að hafa gert mikið meira þarna, en því miður er það mér ei í fersku minni. Ég hef varla hugmynd um hvern fjandann ég gerði, en ég man þó að ég fékk kebab og var skemmtilegur. Hitt verð ég bara að heyra hjá fólkinu sem drakk með mér.
Mér datt einmitt eitthvað rosalega sniðugt í hug varðandi vanvirðingu og konur og eitthvað svoleiðis á djamminu í gær, en ég man því miður ekki hvað það var. Mig minnir að það hafi verið eitthvað um kynlíf og hvað það sé glatað og svona.
10. Október

<21:39> Jæja, núna er ég sko töff, hip og kúl. Er hjá ingó, aka bingó að SKRIFA Á SÍÐUNA MÍNA! Og ég fékk kebab áðan. Það var gott. Ég ætla að fá mér annan í bakaleiðinni. Annars er ég álíka frumlegur og inspired í dag að ég læt þetta duga.
9. Október
<12:43> Jæja, ég slapp með minimal hópvinnu í dag og var kominn úr skólanum kl 12:00… Fjandi góður skítur þar á ferð, kætti litlu sætu sálina mín að geta farið snemma heim með hreina samvisku.
En það var ekki langvinn hamingja, vegna þess að ég steig í fjandans hundakúk á leiðinni heim. Skemmtilegt hvað lífið leikur mig grátt… ef ég slepp snemma frá hóphálfvitunum, þá lendi ég í því að þurfa að skafa skít undan skónum mínum. Ég er ekki frá því að ég sé með óheppnari mönnum norðan alpafjalla.
8. Október
<11:16> Ég var að mæta í skólann og komst að stórtíðindum! ARNOLD VANN RÍKISSTJÓRAKOSNINGARNAR þrátt fyrir ljóta rógburðarherferð Gray Davis. Oh núna verður sko skálað í kampavíni og rúnkað sér yfir conan the barbarian og tortímandanum. Hjarta mitt er fullt af gleði. Arnold minn, ég veit að þú ert svolítið upptekinn þessa dagana, en þegar þú lest síðuna mína næst, innilegar hamingjuóskir, ég samgleðst þér!
Fyrir þá sem vilja kynna sér líf og störf Arnolds, margfalds heimsmeistara í vaxtarækt og nýkosinn ríkissstjóra kaliforníu, þá vil ég mæla með þessari síðu. Svo er meira hérna.
En jæja, þá víkur af hópmeðlimunum mínum, en eins og er er ég bara einn hérna með skeggjuðu stelpunni, og ég er ekki frá því að ég hafi aldrei kynnst jafn vondri lykt af neinu kvenkyns. Þetta er hræðilegt, ég bara vona að þetta festist ekki í fötunum mínum þótt ég sé í sama herbergi og hún. Fjandinn hafi það, ferðavélin hennar er eitthvað biluð… viftan í henni er sífellt að slökkva og kveikja á sér í svona hálfa sekúndu, ég er alveg að verða geðveikur á þessu, langar svolítið að taka vélina hennar og berja hana með henni þangað til að þær drepast báðar… Vonandi skánar lyktin þegar það eru komnir ormar í hana.
6. Október
<14:43> Einnig vil ég minnast á það að ég er einn harðasti stuðningsmaður Tortímandans sem ríkisstjóra kaliforníu. Ótrúlega finnst mér samt mikið óréttlæti að ég geti ekki fengið að kjósa þennan göfuga mann. Einnig verð ég nú að taka undir með félaga mínum golla að mér finnast þessar rassaklípingarásakanir á tortímandann vera merki hinna mestu hælbíta og hýena. Helvítið hann Davis má rotna í helvíti og vera étinn af fembottum fyrir að koma þessu öllu af stað. Það fer ekkert á milli mála að þetta er svertingarherferð svona rétt fyrir kosningar, og þetta er lowest of low. EF ÉG BARA NÆÐI Í DAVIS!
P.S. Skeggjaða stelpan var að koma í grupperumið, og ég er ekki frá því að ég hafi aldrei fundið jafn ótrúlega vonda lykt af stúlku. Þetta er alveg hræðilegt, því að ef hún myndi raka sig og fara í bað, þá gæti hún alveg krækt í einhvern með Downs Syndrome eða eyðni.
<14:30> Þessi stúlka virðist ekki hafa getað haldið ælunni og kúknum í sér lengur þannig að hún hefur bara látið gossa við hliðiná bílnum… Ótrúlega skemmtileg mynd, lýsandi og góð. Ég gef henni 3 stjörnur af 4 mögulegum.

<12:43> Fjandinn hafi það, þetta helvítis svín kemur mér alltaf á óvart, í þessum töluðu orðum er hann að éta ananas.. Aldrei í lífinu vissi ég að það væri hægt að smjatta, slefa og sötra jafn mikið á einum smávegis fjandans ananasbita. Þetta er fjandans óþverri, gaurinn er alveg að slefa útum allt borðið, svo klínir hann öllu saman í peysuna sína og allskonar annað sem fólk gerir ekki flest. Ég er ekki frá því að það sé pura utan á honum, ekki skinn. Maðurinn er fyrsta tilraunin sem “tókst” með að blanda saman mönnum og svínum…
Annars fékk ég að testa nýja og fína rúmið mitt almennilega, svaf yfir mig og allskonar. Ekki er ég samt alveg viss af hverju ég keypti friggin 140cm rúm, þar sem ég sef ennþá eins og ég sé í 70cm rúmi. Samt skemmtilegt. Svo fór ég í gær og keypti mér sjónvarp, notað. Ég fór í aðal glæpahverfið í Odense til að kaupa það, Vollsmose. Það er svona Harlem Danmerkur. Skemmtilegt, ég fékk samt kvittun og svona, þannig að ég geri ráð fyrir því að ég sé með eitthvað sem hafi ekki verið illa fengið. Því ef mig grunaði að það væri illa fengið, þá gæti ég ekki lifað með sjálfum mér, því eins og allir vita, þá er ég svo réttlátur og löghlýðinn einstaklingur, sem færi aldrei að gera náunganum neitt vont.
5. Október
<17:27> Pæling dagsins; Hvernig í fjandanum segir maður smokkar á dönsku? Ég sé fyrir mér alveg mikið panik ef ég ætla að kaupa smokka, reyna öll orð sem mér dettur í hug á staðnum, allir farnir að horfa á mann, svo er maður farinn að benda á typpið á sér og farinn að gera svona ríðumerki með puttunum (bendiputtinn á fleygiferð í gat sem maður gerir með 2 öðrum puttum). Já svona er lífið víst, tómt af vandræðagangi og skemmtilegheitum.
Annars gerði ég lítið í gærkveldi, ég drakk 2 bjóra og ákvað þá að bjór væri ekkert svo góður 3 kvöld í röð… Ég var með æluna í hálsinum, en svo virtist sem að þynnkan hafi ekkert farið að segja til sín fyrr en um 8 í gærkvöldi. Tómt vesen. Ég held að ég sé að verða gamall.. Spurning um að eiga gyllinæðarkrem allavega til… maður veit aldrei.
2. Október
<09:00> Ekki er ég alveg viss hvar ég fékk titilinn að vera einn stærsti rækju- og mysuframleiðandi í Odense, en ég er ekki frá því að það sé rétt og satt og að ég fíliða.
Eitt sem ég vil koma á framfæri, og það er að fólkið sem ég er með í hóp eru mongólítar. Í gær fór ég í hópvinnuna uppfullur af hugmyndum og vonum, en komst svo að því að besti vinur minn í hópnum, tyrkinn var veikur heima. En ókei, sterkur eins og ég er þá lét ég það ekkert á mig fá og ákvað að halda í hugsjónina að betra verkefni. Þannig að ég ullaði útúr mér öllum betrumbótum á verkefninu sem mér datt í hug, en í hvert einasta skipti voru þær skotnar í kaf, útaf því að “það væri búið að ákveða þetta”, og ýmislegar aðrar þeim mun heimskari afsakanir. Fór þar fremst í flokki feita, ljóta sveitta svínið, en ekki langt á eftir kom skegjaða stelpan. Ég er ekki frá því að sá eini sem var sammála mér var homminn, en það er ekkert skrýtið þar sem hann er örugglega að reyna að komast í bólið hjá mér. Kannski maður bara leyfi honum það fyrir stuðninginn. PANT VERA TOP! Svo var seinasti hópmeðlimurinn, en hann segir hvorteðer eiginlega aldrei neitt þannig að mér er drullusama hver hann er. Eitt sem er gott við hann er að hann segir bölvuðum hommanum að halda kjafti eða hætta þegar hann er að syngja, tromma á borðið eða gera eitthvað álíka gáfulegt, sem fer í taugarnar á öllum. Merkilegt líka hvað svona hommadjöflar hafa ótrúlega lélegan húmor… Hann er alltaf að reyna að segja einhverja óþverrabrandara sem allir hafa heyrt svona 8þús sinnum, og hann hlær eins og algjör faggi.
Hóptíminn í gær endaði þannig að ég fór úr honum í miðju kafi með neglurnar á kafi í holdinu mínu eftir að hafa verið með krepptann hnefann í rúman klukkutíma, þyljandi vúdúþulur og reyna að redda mér hári og fleira dóti til að geta gert brúður eins og þetta fólk og stungið það með gaffli í augun. Mikið væri það nú gaman… Geta verið að dunda sér við að stinga fólkið og svona á meðan það er að reyna að tala… Byrja varlega, bara með títuprjón eða eitthvað sem er bara pínku vont, en alltaf færa sig upp, t.d. stinga gafli í iljarnar á þeim og snúa í beinunum, og enda svo á því að snúa andskotans kvikindin úr hálsliðnum. Mikið ótrúlega þarf ég alltaf að vera heppinn með hópfélaga…
Einnig langar mig aðeins að minnast á mjólkina góðu, en sú tilraun fór fyrir lítið þar sem ég var farinn að óttast um hreinlæti rannsóknarstofunnar (herbergið mitt), enda var fjandans flaskan orðin fjandi þrútin og það hefði verið full kinky fyrir mig að vakna með súra mjólkurköggla í andlitinu og á flestum veggjum í herberginu. Þannig að ég lét duga að hrista svolítið upp í þessu, en kögglarnir voru orðnir merkilega harðir og það tók allgóðan hristing að ná “plötunni” í sundur. Þegar mér áskotnast betri aðstæður (t.d. meira skápapláss), þá getiði treyst því að ég reyni þessa tilraun aftur. Annars endaði þessi bara í ruslarennunni eftir hristinginn og ég var búinn að lykta af þessu, sem var einmitt alveg ótrúlega skuggaleg lykt… Ætti allavega að þekkja skemmda mjólk frá ferskri í framtíðinni… Bara spurning hvort maður fatti það fyrr en lyktin er orðin jafn slæm og þessi var orðin..
1. Október
<13:09> Til að byrja með langar mig að biðjast afsökunar á ritstíflu seinustu daga, en um kenni ég miklum þrýstingi í hausnum sökum ofnotkunar af alkahóli og mikilli hreyfingu samhliða því.
En aðeins um hvað lífið er gott hérna, og hve betra það verður með hverjum deginum, lesið endilega þessa frétt, þar sem fram kemur að tollar og gjöld á áfengi hérna lækkar um 47%. Verð ég nú að viðurkenna að þetta er fjandi góð ástæða til að fara á fyllerí. Þið kæru lesendur hljótið að vera sammála mér.
Smá um mjólkina ekki-svo-margumræddu, en ég henti henni bara þar sem ég var farinn að hafa áhyggjur af því að ég myndi vakna einn morguninn útataður í mjólkurkögglum eftir að fjandans brúsinn spryngi. Ekki væri það nú huggulegt, og væri alveg til þess að gera herbergið mitt óíbúðarhæft, þar sem það er nú á mörkunum eins og er, með rykköggla á stærð við fótbolta og fleira í hverju horni, og ýmislegt líf sem enginn hefur séð áður nema ég.
Og nú víkur sögunni að hópfélugunum ófríðu… Ég held svosem að þeir hafi ekkert orðið ljótari eftir helgina en fjandinn hafi það, þeir hafa allavega ekki skánað. Helvítis mannréttindadómstóllinn í Haag ætti nú að taka sig til og “put them out of their misery”. Þessir fjandans bjánar eru hver örðum heimska. Maður þarf alltaf að mæta í “tímana” þegar hópvinnan á að eiga sér stað, en samt gerir maður aldrei neitt. Ég held reyndar að hinir geri aðeins meira en ég, en samt fjandinn hafi það, margt af þessu gæti maður alveg eins gert heima hjá sér, eins og til dæmis þegar maður er að bora í nefið. Fjandinn hafi það.
P.s. Verð að muna; skvass kl 17:15 í dag… Ég er holdgervingur íþróttamennskunnar og heilsusamlegs lífernis.