<21:58> Það verður nú að segjast að þessi menningarnótt var frekar svakaleg… Og djöfull var ég svakalegur líka… Drakk eins og hross, hagaði mér eins og apaköttur og slagaði sem górilla. Life is good. Byrjaði kvöldið á brain police tónleikum um 12 í bænum… Og svo er afgangurinn í einhverju móki… Og slatti af meðslum sem ég veit ekki hvernig mér áskotnaðist. T.d. get ég varla setið sökum þess að ég er svo aumur í annarri rasskinninni, haltra útaf því að stóratáin virðist vera brotin eða einhver fjandinn, rispur á enninu og svo að lokum gott magn af rispum og sárum á höndunum. Ég held að slysalega hafi þetta verið ein svakalegasta nótt sem ég hef upplifað og þessvegna leyfi ég mér að draga þær ályktanir að ég hafi verið pissölvaður og skemmt mér konunglega.