15. Ágúst
<16:04> Smá futurama grín
<10:47> Ég sé mig tilneyddan til þess að minnast aðeins á veikindi sem hrjáðu mig um daginn.. Þannig var mál með vexti að ég var að rífa í mig smá hráan kjúkling… like we do… Og svo um um kvöldið var þessi líka allhressilega magapína að byggjast upp hjá mér… Ég fór svo bara að reyna að sofa og svona, sofnaði í smástund en var annars bara að bylta mér alla nóttina til ca. 3-4… Svo fann ég að ég var að fara að æla þannig að ég hljóp fram á klósett.. Og svo ældi ég allmiklu og flott mál með það… Fékk mér svo fötu og fór fram uppí rúm aftur.. En var stutt þar því ég fann fyrir skyndilegri þörf til þess að kúka… Og engum venjulegum kúk heldur… Því þessi ætlaði út STRAX.. En ég sá mig tilneyddan til að taka fötuna aftur með mér á klósettið þar sem ég sá fram á að ég þyrfti að æla þótt ég væri að kúka.. Og viti menn, þegar ég settist á klósettið þá byrjaði ég að kúgast og kúgast og við það herptust allir vöðvar í líkamanum og heldurðu að kúkurinn hafi ekki barasta frussast út af mesta krafti sem ég hef nokkurntíman vitað um að ég tel það mestu mildi að klósettskálin hafi ekki farið í köku útaf þessu. Ég held að það sé einmitt aðallega því að þakka hve kúkurinn var mjúkur í þessu tilfelli…
<10:02> Jæja, núna er rétt vika í það að ég eigi afmæli, og því vil ég nota tækifærið og koma fram þeim hlutum sem mig langar í í afmælisgjöf. Efst á lista er fleshlight, en ég hef verið að frétta að það sé það nýjasta og besta í rúnkbransanum þessa dagana. Einnig væri ég til í góða dollu af góðum water based lúbrikant… Þessir olíu eru svo helvíti leiðinlegir, erfitt að þvo af og svona… Helvítis lykt af þeim líka.. Annars þigg ég líka allskonar tæki og tól, þurfa ekkert endilega að vera tengd rúnki eða einhverju þannig, og svo eru peningar einnig vel þegnir, en ég tek það fram að ég tek ekki við neinu undir 15.000kr. Inneignarnótur eru líka illa séðar nema þær séu í einhverjum almennilegum búðum. Til dæmis er ekki æskilegt að gefa mér inneignarnótu í hagkaup. Ef einhver missskilningur á sér stað vænti ég þess að fá allavega 3x dýrari gjöf og það innan 2ja daga frá misskilningnum. Ef það verður seinkun á því, þá margfaldast verðið alltaf með 2 á hverjum degi sem líður.
Annars er það í fréttum að kreatín er eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef étið… Maður prumpar svo skuggalega mikið af þessu, að þetta er alveg bjútífúl. Ég er mikið að hugsa um að taka það besta úr tveimur heimum, og baka rúgbrauð með kreatíni í… Þá má fólk sko vara sig!
Svo er ég ennþá að velta því fyrir mér hvernig á því standi að ég er ennþá einhleypur… Ef það hefur einhver svör við því, þá má hann endilega koma þeim á framfæri hérna á vinstri hönd í kvartboxið ógurlega.