Archive forAugust, 2003

25. Ágúst
<22:12> Aldrei í lífinu hef ég verið jafn illa svikinn. Ég fékk ekkert fleshlight í afmælisgjöf, ég var allan afmælisdaginn að vinna og orðinn árinu eldri. Og hvar eru annars helvítis kerlingarnar… Helvíti er ég orðinn þreyttur á þessum helvítis kerlingum… Eins og að ég þurfi eitthvað að elta þær… ÞÆR EIGA AÐ ELTA MIG!! DJÖFULS BEYGLUR!!! RESPECT THE COCK

Comments

<00:23> Djö… Alltaf er tæknin að stríða mér… Ég var að skrifa svaka pistil og kominn langt á leið og þá dettur sambandið út og allt skemmist… Kannski maður fari að vinna þetta í notepad eða eitthvað til að forðast svona helvítis rugl alltaf hreint… tjah… nei.
Annars var ég að teygja áðan í veggsport… Teygjuherbergið þar er frekar lítið… Ég auðvitað í þessum líka svaðalega kreatínkúr og sífretandi… Haldiði að það hafi ekki komið inn tvær gggguuuullllfallegar stelpur í herbergið þegar ég var nýbúinn að svo gott sem skíta í buxurnar… Frábært… Núna fæ ég aldrei að ríða þeim útaf því að þeim finnst vera vond lykt af mér… Helvítis kerlingarbeyglur… Það er alltaf eitthvað! Sífellt nöldur og rugl. Stundum velti ég bara fyrir mér af hverju í fjandanum maður láti ekki bara verða af því að fá sér super tight ass skin glow in the dark fleshlight og hætti að pæla í þessum djöfulsins píkum. Ætla samt að bíða fram á afmælisdag með að sjá hvort ég fái það ekki bara í afmælisjöf… Ég hef ekkert að gera við 2stk þar sem ég legg það venjulega ekki í vana minn að vera að rúnka mér með einhverjum öðrum.
Ég er farinn að sofa að sinni… Kreatín í morgunmat svo og fret allan daginn… IT’S GOOD TO BE ALIVE!!!

Comments

<21:58> Það verður nú að segjast að þessi menningarnótt var frekar svakaleg… Og djöfull var ég svakalegur líka… Drakk eins og hross, hagaði mér eins og apaköttur og slagaði sem górilla. Life is good. Byrjaði kvöldið á brain police tónleikum um 12 í bænum… Og svo er afgangurinn í einhverju móki… Og slatti af meðslum sem ég veit ekki hvernig mér áskotnaðist. T.d. get ég varla setið sökum þess að ég er svo aumur í annarri rasskinninni, haltra útaf því að stóratáin virðist vera brotin eða einhver fjandinn, rispur á enninu og svo að lokum gott magn af rispum og sárum á höndunum. Ég held að slysalega hafi þetta verið ein svakalegasta nótt sem ég hef upplifað og þessvegna leyfi ég mér að draga þær ályktanir að ég hafi verið pissölvaður og skemmt mér konunglega.

Comments

<15:26> Aðeins meira varðandi besta prump allra tíma.. Þá vil ég meina það að baka rúgbrauð með kreatíni í, borða það rétt áður en maður fer að sofa eftir fyllerí… Og þá er maður kominn með þynnkuprump með krafti rúgbrauðsins og svo ennþá verri lykt þökk sé kreatíninu… Er einhver með góða rúgbrauðsuppskrift hérna?
Annars var gærkvöldið álíka skemmtilegt og rotinn banani. Ég gerði ekki rassgat nema drakk 2 bjóra kl 5 um nóttina þegar ég kom heim eftir að vera að rúnta um eins og einhver helvítis skítaplebbi sem er nýkominn með bílpróf… Ég er ekki frá því að ég hafi meiraðsegja fundið þörfina að berja gamla konu með göngugrindinni sinni…

Comments

15. Ágúst
<16:04> Smá futurama grín
<10:47> Ég sé mig tilneyddan til þess að minnast aðeins á veikindi sem hrjáðu mig um daginn.. Þannig var mál með vexti að ég var að rífa í mig smá hráan kjúkling… like we do… Og svo um um kvöldið var þessi líka allhressilega magapína að byggjast upp hjá mér… Ég fór svo bara að reyna að sofa og svona, sofnaði í smástund en var annars bara að bylta mér alla nóttina til ca. 3-4… Svo fann ég að ég var að fara að æla þannig að ég hljóp fram á klósett.. Og svo ældi ég allmiklu og flott mál með það… Fékk mér svo fötu og fór fram uppí rúm aftur.. En var stutt þar því ég fann fyrir skyndilegri þörf til þess að kúka… Og engum venjulegum kúk heldur… Því þessi ætlaði út STRAX.. En ég sá mig tilneyddan til að taka fötuna aftur með mér á klósettið þar sem ég sá fram á að ég þyrfti að æla þótt ég væri að kúka.. Og viti menn, þegar ég settist á klósettið þá byrjaði ég að kúgast og kúgast og við það herptust allir vöðvar í líkamanum og heldurðu að kúkurinn hafi ekki barasta frussast út af mesta krafti sem ég hef nokkurntíman vitað um að ég tel það mestu mildi að klósettskálin hafi ekki farið í köku útaf þessu. Ég held að það sé einmitt aðallega því að þakka hve kúkurinn var mjúkur í þessu tilfelli…
<10:02> Jæja, núna er rétt vika í það að ég eigi afmæli, og því vil ég nota tækifærið og koma fram þeim hlutum sem mig langar í í afmælisgjöf. Efst á lista er fleshlight, en ég hef verið að frétta að það sé það nýjasta og besta í rúnkbransanum þessa dagana. Einnig væri ég til í góða dollu af góðum water based lúbrikant… Þessir olíu eru svo helvíti leiðinlegir, erfitt að þvo af og svona… Helvítis lykt af þeim líka.. Annars þigg ég líka allskonar tæki og tól, þurfa ekkert endilega að vera tengd rúnki eða einhverju þannig, og svo eru peningar einnig vel þegnir, en ég tek það fram að ég tek ekki við neinu undir 15.000kr. Inneignarnótur eru líka illa séðar nema þær séu í einhverjum almennilegum búðum. Til dæmis er ekki æskilegt að gefa mér inneignarnótu í hagkaup. Ef einhver missskilningur á sér stað vænti ég þess að fá allavega 3x dýrari gjöf og það innan 2ja daga frá misskilningnum. Ef það verður seinkun á því, þá margfaldast verðið alltaf með 2 á hverjum degi sem líður.
Annars er það í fréttum að kreatín er eitthvað það skemmtilegasta sem ég hef étið… Maður prumpar svo skuggalega mikið af þessu, að þetta er alveg bjútífúl. Ég er mikið að hugsa um að taka það besta úr tveimur heimum, og baka rúgbrauð með kreatíni í… Þá má fólk sko vara sig!
Svo er ég ennþá að velta því fyrir mér hvernig á því standi að ég er ennþá einhleypur… Ef það hefur einhver svör við því, þá má hann endilega koma þeim á framfæri hérna á vinstri hönd í kvartboxið ógurlega.

Comments

<12:46>

What lesser-known Simpsons character are you?
Brought to you by the good folks at sacwriters.com
.


Ég verð nú að viðurkenna að þetta er alls ekki langt frá sannleikanum, sérstaklega þegar fólk nær á mig á góðum degi. Annars gerðist ég töff og drakk bjór og lék mér í xbox alla helgina, fyrir utan það þegar ég var dáinn eða í bænum ennþá ölvaðari en venjulega. Hæst ber þó að nefna Tiger Woods golfleik sem ég held að ég hafi masterað algjörlega í þynnkunni. Ég mana hvern sem er að afsanna mig.

Comments