< 13:58> Núna er réttur mánuður í það að ég verði kominn á ellilífeyrinn, og mér datt í hug að skrifa smá pistil, og benda ykkur jafnvel á það að þið getið ennþá lesið eldri gullmola frá mér. Ekki leiðinlegt það, að geta rifjað upp gullaldartímana mína.
Ég fór í gríðar hressandi ferð um helgina… Lagði af stað á föstudaginn um eittleytið, var svo kominn til egilsstaða um 9 leytið sama kvöld. Mikill hressleiki þar, með það efst í huga að ég ætlaði að hössla ljóta og feita kerlingu á túr, en komst svo að því að ég gæti ekki einusinni gert það sökum þess hve óhemju ófríður ég er. Svo má ekki heldur gleyma því að ég byrjaði að drekka á selfossi, og ég og frændi minn vorum búnir að drekka sitthvora kippuna, og drukkum svo slatta þegar á egilsstaði komið… Þannig að hressleikinn var í hávegum hafður og löngu orðið erfitt að standa í lappirnar.
Kvöldið eftir var ég svo edrú sem rolla á þörfinni og ferðinni var haldið á seyðisfjörð á dansiball með jónsa og co í svörtum fötum. Það var með eindæmum leiðinlegt þangað til að jónsi fór úr að ofan, og þá kviknuðu tilfinningar í mér sem ég hef aldrei fundið áður… *grrrr* Svo trölluðu strákarnir svörtu lög með nirvana, rage against the machine, rammstein, metallica og system of a down, þannig að þetta dansiball var bara alls ekki slæmt þarna á kafla og maður hagaði sér eins og versta fyllibytta þó svo að maður væri edrú sem héri.
Kúkasögurnar koma seinna, ég held ég sé ennþá með saurbumbu eftir ferðina þar sem ég skeit ekkert… mér er fjandi illa við að skíta á tjaldstæðisklósettum, þannig að ég safnaði bara hinni margumtöluðu saurbumbu.