<00:14> Úff… Þessi skítur rann ekkert smávegis auðveldlega út… Hann var allur smurður í feiti.. Ég held að það sé beikoninu að þakka sem ég át í gær. Svo var líka svona olíuskán í klósettinu eftir að ég var búinn að skíta. Fjandi góður lorri þarna á ferðinni… Ég tímdi varla að sturta þessum meistarastykkjum niður, en allt gott verður víst einhvern endi að taka og það verður skítur eftir þennan skít. *snökt* Þetta var bara eins og að kveða gamlan vin… Maður veit ekki alveg hvað maður á að segja.. Lífið er bara svo innantómt og ég auðvitað innantómur líka, því ég er örugglega 2kg léttari og ekki lengur með saurbumbu…
Annars var ég svona lengi að þessu vegna þess hve löngum kafla í Hitchikers Guide to The Galaxy ég lenti á… Svo seinkaði mér líka á leiðinni á skíthúsið, þannig að ég var ekki í nema um 20mín að þessu annars merkilega verki…

Leave a Comment