<23:40> Og já, mér finnst þessi “ferdalag.blogspot.com” gaur flottur. Allir aðdáendur mínir eru flottir.
<23:17> Skemmtilegt frá því að segja að um helgina hellti ég mér í alkahólisma. Ég skellti mér í lestina til köben eldsnemma á föstudaginn (um 2-leytið). Um 3leytið var ég kominn og hitti félaga minn, alkahólistann og iðjuleysingjann hann Ingó (Lars). Við tókum beina línu frá Hovedbanegård í gegnum strikið, á einhvern sleazy pizzustað og þaðan með kippu af carlsberg að vopni í kongens have, þar sem beið okkar flöskudýr sem gat ekki beðið eftir því að við vorum búnir með bjórinn til að geta fengið flöskuna. Alveg merkileg svona flöskudýr, þetta er útum allt og reynir helst að finna sér sæti við hliðina á manni til þess að geta tekið flöskuna af manni um leið og maður er búinn með seinasta sopann af bjórnum. Mig langaði töluvert að lemja eitt kvikindið með einhverskonar kylfu, þar sem þessar helvítis blóðsugur fóru frekar mikið í taugarnar á mér. En ég ákvað að vera bara sniðugur og setti flöskurnar í ruslið í staðinn fyrir að gefa dýrunum þær… Og auðvitað fóru dýrin beint í ruslið eftir flöskunum… Djöfulsins helvítis asnar… Lowest piece of lifeform sem ég veit um.
Nóg um flöskudýrin, meira um ævintýri helgarinnar.. Sem voru merkilega lítil… nema hvað að við íslensku víkingarnir drukku 16 bjóra hvor á föstudaginn, og annað eins á laugardaginn… Og fórum í bæinn að djamma og eitthvað bull.. Það er samt allt í móðu hjá mér þar sem ég var undir áhrifum ölsins kalda. Skrifa kannski meira ef eitthvað spennandi rifjast upp fyrir mér.
Annars er það í fréttum að ég er langt kominn með ritgerð sem kemur úr sömu seríu og skítferðaritgerðin sem ég póstaði hérna um daginn. Verð ég hinsvegar að segja að í þessari ritgerð er tekist á við miklu háleitari hluti og mikið vandað við skrifin á henni og ekki farið eins og köttur í kringum heitan graut um hlutina.