<08:06> Hahahaha en skemmtilegt. Aldrei á ævinni hef ég verið jafn illa undirbúinn fyrir stærðfræðipróf. Eftir tæpan klukkutíma á ég eftir að mæta í próf, sem ég get alveg eins sleppt því að mæta í, og ég á eftir að falla með stæl. Ég var svolítið að pæla í því að fara uppá borð þegar ég er kominn með prófið, og kúka á prófið, vöðla svo kúkinum inn í prófið og henda í prófdómarann.. Svo get ég bara sagt “It seemed like a good idea at the time” þegar einhver spyr mig hvað í fjandanum hafi vakið fyrir mér
Annars verður frekar forvitnilegt að fylgjast með þessu, öll gögn leyfileg, og ég er með 2x 1400bls bækur, 1x 400bls, og svo 2 möppur af glósum. Vonandi fæ ég geðbilað stórt borð svo ég hafi kannski smá möguleika að komast uppfyrir 1 heilann í einkunn. Það væri nú gott fyrir egóið!