Archive forJune, 2003

<01:14> Núna er einmitt föstudagurinn 13. Ég býst við því að á hverri stundu eigi gyllinæðin eftir að draga mig til dauða. Þessvegna langar mig að ánafna öllum mínum eigum til “ferdalag.blogspot.com”, vegna þess að hann virðist vera minn eini gestur á þessa síðu. Frægðarstjarna mín var fljót að falla. Ætli kúkur sé ekki kúl lengur? Vinsamlegast einhver senda mér póst og segja mér hvað er kúl svo ég geti verið kúl áfram. Ég t.d. held að saurbumbur séu ennþá inn… Please segið mér ef svo er ekki.
Og stelpur… sama hve leiðinlegar og ófríðar, þá skal ég alveg eiga ykkur.

Comments

<00:14> Úff… Þessi skítur rann ekkert smávegis auðveldlega út… Hann var allur smurður í feiti.. Ég held að það sé beikoninu að þakka sem ég át í gær. Svo var líka svona olíuskán í klósettinu eftir að ég var búinn að skíta. Fjandi góður lorri þarna á ferðinni… Ég tímdi varla að sturta þessum meistarastykkjum niður, en allt gott verður víst einhvern endi að taka og það verður skítur eftir þennan skít. *snökt* Þetta var bara eins og að kveða gamlan vin… Maður veit ekki alveg hvað maður á að segja.. Lífið er bara svo innantómt og ég auðvitað innantómur líka, því ég er örugglega 2kg léttari og ekki lengur með saurbumbu…
Annars var ég svona lengi að þessu vegna þess hve löngum kafla í Hitchikers Guide to The Galaxy ég lenti á… Svo seinkaði mér líka á leiðinni á skíthúsið, þannig að ég var ekki í nema um 20mín að þessu annars merkilega verki…

Comments

<23:42> Og já… ástæðan fyrir því að ég er ekki ennþá búinn að kúka er að ég þori ekki að kveðja þessa skítalykt. Satt best að segja þá kveikir hún löngu týndar tilfinningar. Já… Ég held að það sé orðið full langt síðan ég var með kvenmanni. Held ég þurfi að kaupa mér vændiskonu eða eitthvað… Kannski eina svona russian bride sem ég geymt í kistli útí horni og tekið upp þegar mér leiðist… Ég er farinn að skíta. Status report eftir 20mín. s.s. 00:06 ef allt fer að óskum og ég skít ekki þörmunum og gyllinæðin verður til friðs. Ótrúlega leiðinlegt að lenda í því að skíta þörmunum og allt draslið fari bara út… Maður er alveg heillengi að pota því inn… HATA ÞEGAR ÞAÐ GERIST
<23:32> Skemmtileg staðreynd: Eftir því sem þú heldur lengur í þér að skíta, því oftar prumparðu og því verr lyktar þarmagasið þitt. Ég er einmitt í þessum pakka einmitt núna. Og ég er ekki frá því að ég sé orðinn óvenju feitur sökum þess hve þarmar mínir eru fullir af saur. Og ég prumpa nonstop, og það lyktar eins og hrein illska, án hreinlætisins auðvitað.

Comments

<23:40> Og já, mér finnst þessi “ferdalag.blogspot.com” gaur flottur. Allir aðdáendur mínir eru flottir.
<23:17> Skemmtilegt frá því að segja að um helgina hellti ég mér í alkahólisma. Ég skellti mér í lestina til köben eldsnemma á föstudaginn (um 2-leytið). Um 3leytið var ég kominn og hitti félaga minn, alkahólistann og iðjuleysingjann hann Ingó (Lars). Við tókum beina línu frá Hovedbanegård í gegnum strikið, á einhvern sleazy pizzustað og þaðan með kippu af carlsberg að vopni í kongens have, þar sem beið okkar flöskudýr sem gat ekki beðið eftir því að við vorum búnir með bjórinn til að geta fengið flöskuna. Alveg merkileg svona flöskudýr, þetta er útum allt og reynir helst að finna sér sæti við hliðina á manni til þess að geta tekið flöskuna af manni um leið og maður er búinn með seinasta sopann af bjórnum. Mig langaði töluvert að lemja eitt kvikindið með einhverskonar kylfu, þar sem þessar helvítis blóðsugur fóru frekar mikið í taugarnar á mér. En ég ákvað að vera bara sniðugur og setti flöskurnar í ruslið í staðinn fyrir að gefa dýrunum þær… Og auðvitað fóru dýrin beint í ruslið eftir flöskunum… Djöfulsins helvítis asnar… Lowest piece of lifeform sem ég veit um.
Nóg um flöskudýrin, meira um ævintýri helgarinnar.. Sem voru merkilega lítil… nema hvað að við íslensku víkingarnir drukku 16 bjóra hvor á föstudaginn, og annað eins á laugardaginn… Og fórum í bæinn að djamma og eitthvað bull.. Það er samt allt í móðu hjá mér þar sem ég var undir áhrifum ölsins kalda. Skrifa kannski meira ef eitthvað spennandi rifjast upp fyrir mér.
Annars er það í fréttum að ég er langt kominn með ritgerð sem kemur úr sömu seríu og skítferðaritgerðin sem ég póstaði hérna um daginn. Verð ég hinsvegar að segja að í þessari ritgerð er tekist á við miklu háleitari hluti og mikið vandað við skrifin á henni og ekki farið eins og köttur í kringum heitan graut um hlutina.

Comments

<08:06> Hahahaha en skemmtilegt. Aldrei á ævinni hef ég verið jafn illa undirbúinn fyrir stærðfræðipróf. Eftir tæpan klukkutíma á ég eftir að mæta í próf, sem ég get alveg eins sleppt því að mæta í, og ég á eftir að falla með stæl. Ég var svolítið að pæla í því að fara uppá borð þegar ég er kominn með prófið, og kúka á prófið, vöðla svo kúkinum inn í prófið og henda í prófdómarann.. Svo get ég bara sagt “It seemed like a good idea at the time” þegar einhver spyr mig hvað í fjandanum hafi vakið fyrir mér
Annars verður frekar forvitnilegt að fylgjast með þessu, öll gögn leyfileg, og ég er með 2x 1400bls bækur, 1x 400bls, og svo 2 möppur af glósum. Vonandi fæ ég geðbilað stórt borð svo ég hafi kannski smá möguleika að komast uppfyrir 1 heilann í einkunn. Það væri nú gott fyrir egóið!

Comments