<15:10> Aðeins um skeiningar: Það að skeina sér er að mínu eitthvað leiðinlegasta sem ég geri í þessari veröld. Það þýðir samt ekki að ég leggi ekki allan minn metnað í það þegar ég geri það. Þvert á móti, þetta er listgrein fyrir mér, og ég vanda mig alltaf jafn mikið við herlegheitin.
Mér var tjáð um daginn að meirihluti karla skeinir sér “niður”, og næstum allir kvenmenn skeina sér “upp”. Það þykir mér alveg merkilegt… Af hverju ætti maður ekki að skeina sér upp? Ég skeini mér alltaf upp. Ég skeini mér alltaf svona 4-5 sinnum. Fyrst með amk 4 lögum af klósettpappír, svo minnka ég mig niður í ca. 2 lög. Ég skeini mér fyrst “stutt”, svona til að taka mesta lorrann, svo skeini ég mér aðeins ákveðnara með hverju skiptinu og legg mikla áherslu á það að það sé ekki neitt eftir. Svo að lokum, þá sting ég smávegis pappír inn í rassaling, svona til að setja punktinn yfir og passa að rassgatið sé alveg 110% hreint. Ég hef oft látið mér detta í hug að skella rassinum undir vatnsbunu, en ég hef aldrei látið verða almennilega að því.
Svo er það annað sem ég reyni alltaf að gera, og það er að fara að kúka áður en ég fer í sturtu. Þannig get ég verið alveg taaaandurhreinn, hreinni en með minni háþróuðu skeiningu. Einnig er það sem ég forðast eins og heitan eldinn og bara geri alls ekki nema eitthvað virkilega nasty komi uppá, og það er að skíta eftir sturtu. Það er bara ógeðslegt. Vera tandurhreinn eftir sturtu, og setjast svo strax á klósettið og kófsvitna á klósettinu, og vera svo með hálf skítugan rass. Rassinn er nefnilega alltaf skítugur eftir skeiningu. Sama hvað maður skeinir sér vel (nema kannski maður noti blautklúta eða svona svamp eins og er notað á lítil bleyjubörn). Ef þið trúið mér ekki, svona korter eftir skeiningu, stingið þá puta á milli rasskinnanna og þefið svo. Þar komist þið að þeirri skelfilegu raun að það er alltaf skítalykt af rassinum manns sama hvað maður skeini sér vel.
Þannig að ég verð eiginlega að draga þær ályktanir að maður þarf helst alltaf að fara í sturtu eftir skeiningu. Þessar ályktanir dreg ég af áralangri reynslu af skít og skeiningum, og ég skora á ykkur að reyna að hnekkja þessu!