Archive forMay, 2003

<15:10> Aðeins um skeiningar: Það að skeina sér er að mínu eitthvað leiðinlegasta sem ég geri í þessari veröld. Það þýðir samt ekki að ég leggi ekki allan minn metnað í það þegar ég geri það. Þvert á móti, þetta er listgrein fyrir mér, og ég vanda mig alltaf jafn mikið við herlegheitin.
Mér var tjáð um daginn að meirihluti karla skeinir sér “niður”, og næstum allir kvenmenn skeina sér “upp”. Það þykir mér alveg merkilegt… Af hverju ætti maður ekki að skeina sér upp? Ég skeini mér alltaf upp. Ég skeini mér alltaf svona 4-5 sinnum. Fyrst með amk 4 lögum af klósettpappír, svo minnka ég mig niður í ca. 2 lög. Ég skeini mér fyrst “stutt”, svona til að taka mesta lorrann, svo skeini ég mér aðeins ákveðnara með hverju skiptinu og legg mikla áherslu á það að það sé ekki neitt eftir. Svo að lokum, þá sting ég smávegis pappír inn í rassaling, svona til að setja punktinn yfir og passa að rassgatið sé alveg 110% hreint. Ég hef oft látið mér detta í hug að skella rassinum undir vatnsbunu, en ég hef aldrei látið verða almennilega að því.
Svo er það annað sem ég reyni alltaf að gera, og það er að fara að kúka áður en ég fer í sturtu. Þannig get ég verið alveg taaaandurhreinn, hreinni en með minni háþróuðu skeiningu. Einnig er það sem ég forðast eins og heitan eldinn og bara geri alls ekki nema eitthvað virkilega nasty komi uppá, og það er að skíta eftir sturtu. Það er bara ógeðslegt. Vera tandurhreinn eftir sturtu, og setjast svo strax á klósettið og kófsvitna á klósettinu, og vera svo með hálf skítugan rass. Rassinn er nefnilega alltaf skítugur eftir skeiningu. Sama hvað maður skeinir sér vel (nema kannski maður noti blautklúta eða svona svamp eins og er notað á lítil bleyjubörn). Ef þið trúið mér ekki, svona korter eftir skeiningu, stingið þá puta á milli rasskinnanna og þefið svo. Þar komist þið að þeirri skelfilegu raun að það er alltaf skítalykt af rassinum manns sama hvað maður skeini sér vel.
Þannig að ég verð eiginlega að draga þær ályktanir að maður þarf helst alltaf að fara í sturtu eftir skeiningu. Þessar ályktanir dreg ég af áralangri reynslu af skít og skeiningum, og ég skora á ykkur að reyna að hnekkja þessu!

Comments

Horfið á þetta og haldið svo áfram að lesa, þetta er einkar hressandi myndband sem ég var einmitt að hressa uppá kynni mín við…
Hah… Mér finnst þetta alltaf jafn skemmtilegt… Getið lesið smá meira um það hérna

Comments

Já… Seint á mér eftir að finnast stærðfræði skemmtilegt fag. Sit núna í stærðfræði, 6 dagar í prófið… Og ég er algjörlega að blómstra úr leiðindum. Daginn sem ég næ þessu prófi, þá leggst ég í alkahólisma. Annars er líf mitt frekar óspennandi þessa dagana, enginn rassarakstur, sjálfsmorðstilraunir eða farts of fury. Ekki einusinni fyllerí, og ég er búinn að ákveða að fara ekki á skrall fyrr en næst á hróarskeldu, eftir einn mánuð…

Comments

Jæja þá er komið að því. Kvöldið sem ég hef beðið eftir allt mitt líf! EUROVISION MEÐ BIRGITTU HAUKDAL!!!!

Comments

Núna var enn og aftur stolið úr skápnum hjá mér í eldhúsinu… Í þetta skiptið var það heilt brauð sem ég keypti í gær.. Þannig að ég ákvað að skrifa lítinn miða ef þjófurinn ætlar að kíkja í skápinn minn aftur..
I HAVE PUT A LITTLE “SURPRISE” IN SOME OF MY FOOD NOW.
IF YOU STEAL ANYTHING FROM ME AGAIN AND A COUPLE OF HOURS LATER YOUR ASS STARTS TO HURT..
YOU KNOW WHO TO THANK

Comments

<21:48> Hey já… Skemmtileg staðreynd: Í morgun voru liðnir 8 sólarhringar síðan ég fékk seinast sms eða var hringt í mig. Þetta setur mig í svipað sæti á vinsældarlista fólksins og lekandi og kynfæraherpes. Og á hraðri leið niður! Djöfull ætla ég að skjóta mig í hausinn einn daginn…
<16:61> Talandi um fokkings farts of fury… Í hvert skipti sem ég hreyfi mig gossar upp einhver rosalegasta skítalykt sem ég hef nokkurntíman fundið. Ég held að það sé vegna þess að að hlusta á robbie williams áðan… Og það sem verst er… Mér fannst eiginlega bara svolítið gaman að því… Ætli ég eigi eftir að enda í helvíti?

Comments